Auðkenning á Ísland.is
Auðkenning á Ísland.is
Þjónusta Ísland.is
- Auðkenningarþjónustu Ísland.is má nota til auðkenningar inn á lokaðar síður stofnana og sveitarfélaga, svokallaðar „Mínar síður“. Þannig geta stofnanir og sveitarfélög dregið úr útgjöldum og fyrirhöfn miðað við að þau hefðu sjálf þurft að koma sér upp móttöku skilríkja eða notendalista með lykilorðum.
Auðkenning í boði
- Veflykill ríkisskattstjóra. Allir landsmenn 18 ára og eldri geta fengið veflykil og þegar í stað nýtt sér þá þjónustu sem byggir á auðkenningunni.
- Rafræn skilríki á debetkorti. Þetta er öruggasta auðkenningarleiðin og er ætluð sem framtíðarlausn þegar slík skilríki eru komin í almenna notkun.
Ferli við auðkenningu
- Ferlið hefst á vef viðkomandi stofnunar eða á Ísland.is.
- Viðskiptavinur smellir á auðkenningarhnapp sem flytur hann á auðkenningarsíðu Ísland.is. Á síðunni kemur fram bæði lógó Ísland.is og lógó viðkomandi stofnunar.
- Viðskiptavinur auðkennir sig með viðeigandi skilríki.
- Viðskiptavinur flyst tilbaka á „Mínar síður“ viðkomandi stofnunar.
Uppsetning
- Stofnun undirritar samkomulag við Þjóðskrá Íslands fyrir hönd Ísland.is.
- Stofnun sendir lógó og síðu sem á að birtast eftir auðkenningu til Ísland.is. island@island.is
-
Tæknilegt auðkenningarferli:
- Eftir auðkenningu skilar Ísland.is SAML-skírteini í rafræna þjónustulagið.
- Stofnunin gerir vefþjónustukall í rafræna þjónustulagið til að sækja SAML- skírteinið.
- Þegar stofnunin hefur sótt SAML-skírteinið þarf að aðgæta hvort undirritun þess sé gild.
Sjá nánar í leiðbeiningum til tæknimanna þeirra stofnana sem vilja nýta sér auðkenninguna (pdf)

Mittsvæði