Um island.is
Um Ísland.is
Ísland.is er leiðarvísir að opinberri þjónustu og liður í að auðvelda almenningi aðgang að henni.
Hvað er Ísland.is?
- Ísland.is er eitt meginverkefnið í Netríkinu Ísland, stefnu ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið 2008-2012. Þar segir: „Ísland.is verði netmiðstöð sem gefur yfirlit um þjónustu opinberra aðila. Þar verði á einum stað aðgengi að upplýsingum og þjónustu allra opinberra stofnana“.
- Ísland.is var þróað í forsætisráðuneytinu, opnað í mars 2007 og hefur síðan verið í áframhaldandi rekstri og þróun í ráðuneytinu.
- 1. janúar 2011 fluttist þróun og rekstur verkefnisins til Þjóðskrár Íslands.
Helstu hlutverk Ísland.is
- Upplýsinga- og þjónustuveita stjórnvalda. Hér er að finna upplýsingar um opinbera þjónustu sem sett er þannig fram að notendur þurfi ekki að vita fyrirfram hver veitir þjónustuna. Hér er einnig að finna aðgang að stórum hluta eyðublaða hins opinbera.
- Verkfærakista. Á Ísland.is hafa verið þróuð verkfæri sem nýtast öllum opinberum aðilum. Um er að ræða miðlæga auðkenningu, netskil og rafrænt þjónustulag m.a. til að auðvelda gagnasamskipti. Verkfærakistan hefur verið í notkun frá 2009 og er nýtt af mörgum stofnunum.
-
- Ísland.is nýtir auðkenninguna fyrir netskilin og mínar síður.
- Eftirtaldir nota Ísland.is til að auðkenna inn á eigin þjónustuvefi: Bændasamtök Íslands, Dýralæknafélag Íslands, Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins, Íbúðalánasjóður, Kennarasamband Íslands, Lánasjóður íslenskra námsmanna, Matvælastofnun, Rannís, Siglingastofnun Íslands, Sjúkratryggingar Íslands, Tryggingastofnun, Umferðarstofa og Þjóðskrá Íslands.
- Eftirtaldar stofnanir nota netskil í gegnum Ísland.is: Breiðdalshreppur, Fornleifavernd ríkisins, Grindavíkurbær, Matvælastofnun, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Sýslumenn, Þjóðskrá Íslands og Örnefnanefnd.
- Ísland.is nýtir auðkenninguna fyrir netskilin og mínar síður.
- Mínar síður með einstaklingsmiðuðum aðgangi að lykilskrám í eigu hins opinberra og aðgangi að opinberri þjónustu. Mínar síður voru opnaðar í maí 2011.
Umsjón verkefnis
- Samráðshópur á vegum forsætisráðuneytis, skipaður fulltrúum ráðuneyta og sveitarfélaga tekur stefnumótandi ákvarðanir um verkefnið í samræmi við stefnu ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið.
- Þjóðskrá Íslands, svið rafrænnar stjórnsýslu, sér um þróun og rekstur verkefnisins.
Hafðu samband
- Hægt er að hafa samband við Ísland.is á netfanginu
island hjá island.is.
- Allar ábendingar varðandi efni eru vel þegnar.

