Umræðutími er liðinn og því er ekki lengur hægt að stofna nýjar færslur.
| Höfundur |
Færsla |
|
|
Ég er ekki alveg sammála Braga um að leiðarljósið sem fjallar um að Ísland verði í fararbroddi þjóða varðandi rafræna stjórnsýslu sé óraunhæft.
Það er hárrétt að markmiðið um fíkniefnalaust Ísland var út úr korti en ég held þvert á móti að við getum náð því að verða fremst á þessu sviði einmitt vegna smæðar okkar og tiltölulega hóflegs flækjustigs stjórnsýslunnar, a.m.k. samanborið við mörg önnur lönd sem ég þekki til. Við erum þegar fremst meðal jafningja á einhverjum sviðum rafrænnar stjórnsýslu eins og t.a.m í skattamálum.
Vandinn er eins og Bragi bendir á að oft vantar fjármagn til að fylgja stóru orðunum eftir.
|
 |
|
|
|
Knúið af JForum 2.1.8
© JForum Team
|
Notkunarskilmálar