Eitt af lykilatriðunum varðandi framþróun rafrænnar stjórnsýslu á Íslandi er að lög séu endurskoðuð með tilliti til þess að lagaumhverfi hefti ekki framþróun á þessu sviði.
Nýverið sótti ég um styrk hjá stéttarfélaginu mínu og gat ég sótt um hann með rafrænum hætti í umsóknarkerfi sem stéttarfélagið hafði komið sér upp. Ég sótti um styrkinn, skannaði inn reikning fyrir útlögðum kostnaði og lét hann fylgja með umsókninni og var afar ánægður með að þurfa ekki að fara á staðinn eða senda inn fylgigögn með pósti.
Það kom hinsvegar í ljós að stéttarfélagið krafðist þess að fá frumrit af reikningnum, afrit dugði ekki. Ég þurfti því að koma með frumritið af reikningnum eða senda hann í pósti. Stéttarfélagið vísaði til þess að samkvæmt lögum þyrfti félagið að fá frumritið, innskannað afrit dugði ekki.
Ef þetta er rétt, þ.e. að til séu lög um að stéttarfélögum beri að krefjast frumrit af reikningum vegna styrkja, þykir mér mikilvægt að þau lög verði endurskoðuð þannig að afrit af reikningum dugi. Með þeirri breytingu væri hægt að ná fram fullu hagræði af rafrænum umsóknum hjá stéttarfélögum og þannig má spara félagsmönnum tíma og fyrirhöfn.
Þetta er bara eitt lítið dæmi um það hvernig lög geta aftrað því að fullt hagræði og full skilvirkni náist með rafrænni stjórnsýslu/umsýslu. Stjórnvöld þurfa að fara ítarlega yfir öll lög með tilliti til þess að lög og reglur dragi ekki úr því hagræði og þeirri skilvirkni sem rafræn stjórnsýsla getur svo sannarlega skilað okkur ef umgjörðin er góð.
Skoða þarf einnig reglur varðandi skjalavistun og skil á skjölum til Þjóðskjalasafns.
T.d. þarf að skilgreina hvenær telst mál vera mál sem þarf að vista í málaskrá(t.d. GoPro) og hvenær er um ræða rútínuumsókn sem á að geta afgreiðst sjálfvirkt í gegn um rafræn kerfi(sem er samt hægt að fletta upp og skoða)
Ef staðan er sú að setja þarf ÖLL skjöl/umsóknir/tölvupósta inn í málaskrá sem þarf síðan að prenta út á pappír og senda niður í Þjóðskjalasafn þá er bæði hagræðing vegna upplýsingatækni dauð orð svo ekki sé minnst á umhverfisstefnu okkar litla lands. Lágmark að hægt sé að senda þetta á rafrænu formi til safnsins.
Tek fram að ofangreint er sú staða sem mér sögð vera uppi, hef ekki kynnt mér málið sjálfur í smáatriðum og gott ef einhver kæmi með innlegg sem myndi varpa ljósi á málið.
Einnig þarf að skilgreina opinbera þjónustu að hún uppfylli lágmarks notendavænleika, t.d. "verður að virka á Windows x.x með Internet explorer vafra x.x, Firefox x.x og MacOS 10.x með Safari x.x vafra, Firefox x.x. T.d var þessu ekki að heilsa þegar RSK.is fór í loftið í fyrsta sinn en þeim til hróss þá brugðust þeir mjög skjótt við og löguðu vandann.