Velkomin á spjallborð island.is

Umræðutími er liðinn og því er ekki lengur hægt að stofna nýjar færslur.

Rafræn þjónusta hins opinbera við fyrirtæki  XML
Forsíða spjallborða » Tillögur og umræður: Hvað þarf að bæta í rafrænni þjónustu?
Höfundur Færsla
Þórður


Skráð/ur: 08/02/2008 09:48:06
Færslur: 2
Ótengdur

Ég hef verið í fyrirtækjarekstri í yfir 10 ár nú og þróunin á þeim tíma hefur verið mjög góð. Í fyrstu þurfti að skila öllum skilagreinum til hins opinbera á pappír en í dag er þetta að miklu leyti orðið rafrænt. Þó má ávallt gera betur. Ég nefni t.a.m. einfaldan hlut eins og skilagrein vegna fjármagnstekjuskatts af innheimtum vaxtatekjum og arðgreiðslum. Þetta eyðublað er enn á pappírsformi. Þessu þarf að breyta.
Óskráður



Rafræn skilríki munu skipta miklu máli við að innleiða rafræna þjónustu bæði opinberra aðila og eins í einkageira.

http://skilriki.is
Bragi_Hauksson


Skráð/ur: 02/03/2008 22:39:11
Færslur: 3
Ótengdur

Ég er mikill áhugamaður um rafræn skilríki og ljóst að ýmsir möguleikar opnast þegar þau verða orðin útbreidd.
Það hefur hins vegar farið í taugarnar á mér að mér hefur fundist sem sumir notuðu skort á rafrænum skilríkjum sem afsökun fyrir slælegri frammistöðu í rafrænni stjórnsýslu.
Það er gott að nú styttist í að menn geti ekki lengur notað þessa afsökun, ... verða í það minnsta að finna nýja
 
Forsíða spjallborða » Tillögur og umræður: Hvað þarf að bæta í rafrænni þjónustu?
Fara í:   

Knúið af JForum 2.1.8 © JForum Team   |   Notkunarskilmálar