Velkomin á spjallborð island.is

Umræðutími er liðinn og því er ekki lengur hægt að stofna nýjar færslur.

Tillögur um nýja stefnu  XML
Forsíða spjallborða » Upplýsingar: Stöðumat og tillögur um nýja stefnu
Höfundur Færsla
Ritstjóri


Skráð/ur: 25/01/2008 13:07:20
Færslur: 6
Ótengdur

Hér eru kynnt drög að stefnuramma, sem byggð á áhersluatriðum sem fram komu á fundi stefnumótunarnefndarinnar með fulltrúum stjórnsýslunnar og hagsmunaðila á Selfossi þann 9. janúar sl. Á grunni þessa stefnuramma verða mótaðar tillögur um markmið nýrrar stefnu um upplýsingasamfélagið.

Þessi færsla hefur verið uppfærð 5 sinnum. Síðasta breyting var 07/02/2008 16:24:26

eggertol


Skráð/ur: 10/02/2008 10:43:58
Færslur: 1
Ótengdur

Var að skrá mig inn - er að prófa kerfið - lítur vel út

Eggert Ólafsson, MPA, Upplýsingatæknimiðstöð Reykjavíkurborgar
Bragi_Hauksson


Skráð/ur: 02/03/2008 22:39:11
Færslur: 3
Ótengdur

Í stefnurammanum er tilgreint leiðarljós: "Vera fremst þjóða í rafrænni þjónustu og nýtingu upplýsingatækni".
Þetta minnir óþægilega á markmið stjórnvalda um fíkniefnalaust Ísland árið 2000. Markmiðið var bæði of háleitt og eins voru stjórnvöld alls ekki tilbúin að fylgja stóru orðunum eftir með viðeigandi fjárveitingum.
Þetta minnir líka suma á fyndnar bjórauglýsingar með skemmtilega sjálfumglöðum Íslendingum....
Aðrar þjóðir hafa verið að sigla fram úr okkur og það á sér að sumu leyti eðlilegar skýringar. Það er að hluta til svipað verk að bjóða upp á rafræna þjónustu fyrir 300 þúsund hræður eins og 3 milljónir eða jafnvel 30 milljónir. Ég tel hins vegar raunhæft að stefna að því að við verðum á meðal topp 20 þjóða í rafrænni stjórnsýslu. Það er afar mikilvægt að setja raunhæf markmið og tryggja fjármuni og stuðning til þess að ná þeim. Það er óheppilegt að setja svo háleit markmið að það sé bara spurning um hversu langt fólk verður frá því að ná þeim. Það er niðurdrepandi fyrir alla.
Því mæli ég eindregið með að stefnurammablaðið verði endurskoðað, þannig að það verði bæði metnaðarfullt og raunhæft!
ojsand


Skráð/ur: 25/03/2008 11:16:04
Færslur: 1
Ótengdur

Ég er ekki alveg sammála Braga um að leiðarljósið sem fjallar um að Ísland verði í fararbroddi þjóða varðandi rafræna stjórnsýslu sé óraunhæft.
Það er hárrétt að markmiðið um fíkniefnalaust Ísland var út úr korti en ég held þvert á móti að við getum náð því að verða fremst á þessu sviði einmitt vegna smæðar okkar og tiltölulega hóflegs flækjustigs stjórnsýslunnar, a.m.k. samanborið við mörg önnur lönd sem ég þekki til. Við erum þegar fremst meðal jafningja á einhverjum sviðum rafrænnar stjórnsýslu eins og t.a.m í skattamálum.
Vandinn er eins og Bragi bendir á að oft vantar fjármagn til að fylgja stóru orðunum eftir.

Þessi færsla hefur verið uppfærð einu sinni. Síðasta breyting var 25/03/2008 13:53:20


Óskar J. Sandholt
 
Forsíða spjallborða » Upplýsingar: Stöðumat og tillögur um nýja stefnu
Fara í:   

Knúið af JForum 2.1.8 © JForum Team   |   Notkunarskilmálar