Örorkumat og greining fatlaðra

Örorkumat og greining fatlaðra

Tryggingastofnun ríkisins (TR) metur örorku þeirra sem sækja um örorkulífeyri eftir settum reglum. Stofnuninni er heimilt að setja það skilyrði að umsækjandi gangist undir sérhæft mat á möguleikum til endurhæfingar áður en til matsins kemur.

Greining fatlaðra

Örorkumat

  • Einstaklingur á aldrinum 16 til 67 ára getur óskað eftir örorkumati í samráði við lækni sinn þegar ljóst er að hann nær ekki fullum bata eftir slys eða sjúkdóm. Algengt er að matið fari fram þegar einstaklingur hefur fengið sjúkradagpeninga í eitt ár.

  • Sérstöku vottorði frá lækni og umsókn einstaklings um örorkulífeyri og tengdar greiðslur ásamt frekari gögnum þarf að skila til Tryggingastofnunar ríkisins.
    Um örorkumat á vef Öryrkjabandalags Íslands

  • Í sumum tilfellum er sá sem sækir um örorkumat kallaður í viðtal eða skoðun hjá lækni á vegum Tryggingastofnunar og getur hann þá átt rétt á endurgreiðslu ferðakostnaðar.
    Dvalarkostnaður á vef Sjúkratrygginga 
    Ferðakostnaður á vef Sjúkratrygginga

  • Örorkubætur eru ákvarðaðar eftir sérstökum staðli í samræmi við niðurstöðu örorkumats.
    Örorkumat og -bætur á vef Sjúkratrygginga

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica