Ýmis þjónusta
Ýmis þjónusta
Lögum samkvæmt eiga fatlaðir rétt á almennri þjónustu og aðstoð. Þeir eiga að njóta sambærilegra lífskjara og jafnréttis á við aðra þjóðfélagsþegna.
Yfirlit
Ýmis þjónusta
- Hjálpartækjamiðstöð Sjúkratrygginga Íslands sér um afgreiðslu á hjálpartækjum til fatlaðra og veitir ráðgjöf. Þegar keypt er hjálpartæki þarf heimild frá Sjúkratryggingum vegna greiðsluþátttöku.
Sækja um hjálpartæki hjá Sjúkratryggingum
- Fötluð börn og fjölskyldur þeirra geta leitað eftir þjónustu stuðningsfjölskyldna. Barn getur dvalið hjá stuðningsfjölskyldu tvo til þrjá sólarhringa í mánuði.
Um stuðningsfjölskyldur á vef Sjónarhóls - Boðið er upp á sumardvöl fyrir fötluð börn á nokkrum stöðum á landinu, ýmist á vegum sveitarfélaga, félagasamtaka eða einstaklinga.
Sumardvöl fyrir fatlaða á vef Sjónarhóls - Fatlaðir geta sótt um stæðiskort sem veitir heimild til að leggja ökutæki í stæði merkt fötluðum. Sótt er um kortin hjá lögreglustjórum og sýslumönnum.
Um stæðiskort fyrir fatlaða á vef Lögreglunnar
- Í nokkrum stærri sveitarfélaganna er rekin ferðaþjónusta fyrir fatlaða. Panta þarf þjónustu með fyrirvara og misjafnt er eftir sveitarfélögum hvaða reglur gilda til að mynda um fjölda ferða og hvort og hvað er greitt fyrir þjónustuna.
Ferðaþjónusta á vef Öryrkjabandalagsins - Fatlaðir og hreyfihamlaðir sem ferðast með flugi eiga vissan rétt á endurgjaldslausri aðstoð við að komast ferða sinna um flughafnir og á sérstökum aðbúnaði á flugi.
Nánar um réttindi fatlaðra og hreyfihamlaðra flugfarþega á island.is - Fötluðum og öryrkjum stendur til boða félagsleg heimaþjónusta og félagsleg liðveisla á vegum stærri sveitarfélaga.
Sveitarfélög á landinu
Um félagslega þjónustu á vef Sjónarhóls
Um félagslega liðveislu á vef Sjónarhóls - Í sumum sveitarfélögum er boðið upp á íþrótta- og tómstundastarf og annars konar afþreyingu fyrir fatlaða.
Tómstundir, íþróttir og afþreying á menntagatt.is
Vert að skoða
- Hverfið mitt, hverfavefir Reykjavíkurborgar
- Íþróttasamband fatlaðra
- Málefni fatlaðra á vef velferðarráðuneytis
- Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum við HÍ
- Spurt og svarað um yfirfærslu málefna fatlaðsfólks frá ríki til sveitarfélaga
- Systkinasmiðjan - fyrir systkini fólks með sérþarfir
- Yfirfærsla á málefnum fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga, á vef Sambands ísl. sveitarfél.

