Orðskýringar

V

VAKT

vakt er ákveðið vinnutímabil á *vinnustöðum þar sem *starfsemin nær yfir lengri tíma en venjulegan vinnudag, t.d. allan sólarhringinn, og starfsfólk skiptist á að vinna; ef maður vinnur á vöktum vinnur maður á mismunandi tímum, t.d. stundum á daginn og stundum á kvöldin eða nóttunni

VAKTAVINNA

vaktavinna felst í því að vinna á *vöktum

VASAPENINGAR

vasapeningar eru peningar sem t.d. börn og unglingar fá frá foreldrum sínum til daglegrar neyslu; vasapeningar geta líka verið peningar sem *elli- og *örorkulífeyrisþegar geta átt rétt á ef þeir dvelja t.d. á sjúkrahúsi og fá ekki *lífeyri

VAXTABÆTUR

vaxtabætur er *styrkur frá ríkinu sem fólk getur átt rétt á samkvæmt ákveðnum reglum ef það borgar háa *vexti af húsnæðislánum

VAXTAKJÖR

vaxtakjör hjá *banka eða lánastofnun ráðast af því hvað maður þarf að borga háa *vexti af *láni sem maður fær í bankanum eða stofnuninni

VEÐ

veð er *trygging fyrir því að sá sem lánar fólki peninga fái þá til baka þótt fólk geti ekki borgað af *láninu; lán sem fólk fær til að kaupa *húsnæði er t.d. oftast tryggt með veði í húsinu eða íbúðinni

VEÐBRÉF

veðbréf eru *skuldabréf með *veði í *eign

VEFFANG

veffang er slóð á *netinu, nokkurs konar heimilisfang, sem leiðir á *heimasíðu eða vef stofnunar, fyrirtækis eða einstaklings

VEFSÍÐA

vefsíða er skjal eða svæði á *netinu sem hægt er að komast í úr öllum tölvum gegnum ákveðið *veffang

VEGABRÉF

vegabréf eru sérstök *persónuskilríki frá *yfirvöldum sem fólk þarf að hafa til að mega ferðast á milli landa

VEGABRÉFAEFTIRLIT

vegabréfaeftirlit felst í því að *vegabréf fólks eru skoðuð þegar það kemur til landsins til þess að staðfesta t.d. að fólk sé það sem það segist vera

VEGABRÉFASKOÐUN

vegabréfaskoðun er það sama og *vegabréfaeftirlit

VEGABRÉFASKRÁ

vegabréfaskrá er sérstök skrá í vörslu *yfirvalda yfir öll *vegabréf sem hafa verið gefin út og upplýsingarnar sem eru í þeim

VEGABRÉFASKYLDA

vegabréfaskylda felur í sér að maður verður að hafa *vegabréf á *ferðalögum á milli landa

VEGABRÉFSÁRITUN

vegabréfsáritun felur í sér leyfi frá *yfirvöldum lands, sem maður ætlar að ferðast til, til þess að koma þangað og það er staðfest með sérstakri *áritun í *vegabréfi manns; maður þarf ekki að hafa vegabréfsáritun til að ferðast til allra landa

VEGABRÉFSHAFI

ef maður er vegabréfshafi þá er maður með *vegabréf sem er í gildi

VEIKINDADAGUR

veikindadagur er dagur sem maður er veikur og kemst þess vegna ekki í *vinnuna; *launafólk vinnur sér inn rétt á veikindadögum eftir ákveðnum reglum í *kjarasamningum og missir því ekki *launin sín þótt það sé veikt í ákveðinn tíma

VEIKINDI

það eru veikindi þegar fólk er veikt í langan tíma

VERÐBÓLGA

það er verðbólga þegar verð á vörum og þjónustu hækkar almennt og verðgildi peninga minnkar þannig að fólk getur t.d. keypt minna fyrir *launin sín

VERÐBRÉF

verðbréf er skjal sem staðfestir að maður eigi verðmæti, t.d. *hlutabréf sem segir að maður eigi hlut í *hlutafélagi eða *skuldabréf sem segir að maður eigi inni pening sem einhver skuldar manni

VERÐBÆTUR

verðbætur bætast við upphaflega *upphæð, t.d. á *láni eða bankainnistæðu, ef verðlag hefur hækkað vegna *verðbólgu þannig að verðgildi peninganna haldist nokkurn veginn það sama

VERÐLAGNING

það er verðlagning þegar verð á vörum eða *þjónustu er ákveðið

VERÐTRYGGÐUR

ef lán er verðtryggt þýðir það að *upphæð þess breytist eftir verðlagi í landinu og hækkar eftir því

VERÐTRYGGING

verðtrygging miðar að því að tryggja verðgildi peninga þannig að *upphæð t.d. *eignar eða *skuldar breytist eftir verðlagi í landinu og hækki eftir því

VERKALÝÐSFÉLAG

verkalýðsfélag er *stéttarfélag fyrir verkafólk

VERKALÝÐSHREYFING

verkalýðshreyfingin eru einstaklingar og *verkalýðsfélög sem gæta hagsmuna verkafólks, t.d. með því að sjá til þess að fólk fái sanngjörn laun fyrir vinnu sína

VERKFALL

verkfall felst í því að *launafólk leggur niður vinnu til þess að mótmæla t.d. *launum sínum eða *starfsaðstöðu og til þess að krefjast hærri launa

VERKLEGT NÁM

í verklegu námi er *nemendum kennt að vinna ákveðin verk og að nota til þess ákveðnar aðferðir og verkfæri; nemendur læra aðallega af leiðbeiningum *kennara og því sem hann sýnir þeim en minna af bókum; verklegar námsgreinar eru t.d. *textílmennt og smíðar og verklegt nám er t.d. stundað á verknámsbrautum í *framhaldsskólum og í *iðnskólum

VERKSTÖÐ

verkstöð manns er sá staður innan *vinnustaðarins þar sem maður vinnur, t.d. skrifborðið manns

VERKSVIÐ

verksvið manns er það sem maður starfar við í vinnunni, t.d. sú tegund af verkefnum sem maður vinnur eða tekur þátt í

VERKTAKI

ef maður er verktaki þá vinnur maður á eigin vegum og tekur að sér að vinna ákveðin verk fyrir aðra; verktaki sér sjálfur um að innheimta launin sín og að greiða af þeim *skatta og gjöld

VERSLUN

verslun er fyrirtæki sem selur ákveðnar vörur, t.d. fást matur, hreinlætisvörur o.fl. í matvöruverslunum

VEXTIR

vextir eru ákveðin prósenta sem er greidd af peningaupphæð á ákveðnu tímabili, t.d. á einu ári; maður fær vexti af peningum sem maður geymir á *bankareikningi og maður þarf að borga vexti af peningum sem maður tekur að láni

VIÐBÓTARLÍFEYRIS-SPARNAÐUR

viðbótarlífeyrissparnaður er ákveðið hlutfall af launum fólks sem það sparar í *lífeyrissjóði eða á lífeyrisreikningi í *banka til viðbótar við það sem er skylda að leggja í lífeyrissjóð

VIÐSKIPTAVINUR

ef maður er viðskiptavinur fyrirtækis þá kaupir maður þjónustu eða vörur af fyrirtækinu

VIÐSKIPTI

viðskipti felast í því að fólk eða fyrirtæki skiptast á vörum, peningum o.s.frv.

VIÐSTADDUR

ef maður er viðstaddur eitthvað þá er maður á staðnum þegar það gerist

VIÐTAKANDI

ef maður er viðtakandi einhvers þá er maður sá sem á að taka við því eða fá það; viðtakandi bréfs er t.d. sá sem bréfið er stílað á

VIÐTAL

viðtal er formlegt samtal milli fólks, oftast tekið af embættismanni eða blaðamanni í ákveðnum tilgangi

VIÐURKENNDUR

ef eitthvað er viðurkennt t.d. af stjórnvöldum þá er það opinberlega leyft eða samþykkt

VIÐURKENNING

viðurkenning felst í því að hrósa fólki eða veita því verðlaun t.d. fyrir vel unnið starf eða *nám

VIÐURLÖG

viðurlög eru *ákvæði um *refsingu fyrir brot á *lögum eða reglum

VINNA

vinna felst í því að starfa við eitthvað eða að einhverju; vinna manns er það starf sem maður hefur og fær *laun fyrir

VINNSLA

vinnsla felst í því að vinna úr einhverju til þess að framleiða vörur; fiskvinnsla felst t.d. í því að vinna úr fiskinum og framleiða úr honum vörur sem hægt er að selja

VINNSLUSALUR

vinnslusalur er svæði í t.d. verksmiðju eða frystihúsi þar sem *vinnsla á vöru fer fram

VINNUAFL

vinnuafl er sá hópur fólks sem stundar *vinnu á ákveðnum stað og ákveðnum tíma; ef það vantar vinnuafl þá er ekki nægilega margt fólk til að vinna störfin sem þarf að vinna

VINNUDAGUR

vinnudagur er sá hluti dagsins sem maður stundar vinnu, t.d. frá kl. 9-17

VINNUFÉLAGI

vinnufélagi manns er maður eða kona sem vinnur á sama *vinnustað eða vinnur að sama verkefni og maður sjálfur

VINNUFÆR

ef maður er vinnufær þá er maður nógu hraustur til að geta stundað *vinnu

VINNUMARKAÐUR

vinnumarkaður er sá vettvangur sem fólk vinnur á; ef fólk er á vinnumarkaðnum þá hefur það einhverja *atvinnu

VINNUMÁLASTOFNUN

vinnumálastofnun er sérstök stofnun sem hefur yfirumsjón með *vinnumiðlunum í landinu og *atvinnuleysistryggingum

VINNUMIÐLUN

vinnumiðlun er skrifstofa sem aðstoðar fólk við að finna *vinnu og fyrirtæki við að finna *starfsfólk

VINNUSLYS

vinnuslys er *slys sem fólk verður fyrir í vinnunni

VINNUSLYSATRYGGING

vinnuslysatrygging er *trygging sem bætir *tjón vegna *vinnuslyss

VINNUSTAÐUR

vinnustaður er sá staður þar sem maður vinnur, t.d. fyrirtæki eða stofnun

VINNUTEKJUR

vinnutekjur eru *tekjur sem fólk hefur fyrir *vinnu sína

VINNUTILHÖGUN

vinnutilhögun manns segir til um hvernig maður vinnur, t.d. hversu lengi á hverjum degi og á hvaða tíma dagsins

VINNUTÍMABIL

vinnutímabil er sá tími sem maður stundar einhverja vinnu, t.d. þrír mánuðir ef maður er aðeins í sumarvinnu

VINNUTÍMI

vinnutími er sá tími sem maður vinnur á hverjum degi, t.d. á milli kl. 9 og 17

VINNUTJÓN

ef maður verður fyrir vinnutjóni þá getur maður ekki unnið, t.d. vegna veikinda eða slyss

VINNUVEITANDI

vinnuveitandi er einstaklingur eða fyrirtæki sem hefur fólk í vinnu; vinnuveitandi manns er maðurinn eða fyrirtækið sem maður vinnur hjá

VINNUVIKA

vinnuvika er sá hluti vikunnar sem maður stundar vinnu, oftast frá mánudegi til föstudags

VIRÐISAUKA-SKATTSNÚMER

fyrirtæki verður að hafa virðisaukaskattsnúmer ef það ætlar að hefja rekstur sem þarf að greiða *virðisaukaskatt af

VIRÐISAUKA-SKATTUR

virðisaukaskattur er *skattur sem þeir sem selja vörur og þjónustu þurfa að borga til ríkisins; virðisaukaskattur er mishár eftir því hvers konar vörur eða þjónustu er verið að selja

VIRÐISAUKI

virðisauki er það sama og *virðisaukaskattur

VÍSITALA

vísitala er mælikvarði sem sýnir breytingar á verðgildi peninga á ákveðnu tímabili

VÍXILL

víxill er sérstök tegund af *skuldabréfi sem staðfestir að sá sem tekur *lán hjá einhverjum ætli að greiða það til baka á ákveðnum degi

VOTTFESTUR

skjal eða pappír sem hefur verið vottfestur hefur verið undirritaður af *vottum

VOTTORÐ

vottorð er skrifleg yfirlýsing sem er notuð til þess að staðfesta eitthvað, t.d. *heilbrigðisvottorð eða *hjúskaparvottorð

VOTTUR

vottur er vitni að einhverju, t.d. því að rétt manneskja hafi skrifað undir pappíra og að allt hafi farið rétt fram, og staðfestir það með *undirskrift sinni


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica