Orðskýringar

P

PASSAMYND

passamynd er lítil ljósmynd af andliti fólks sem er notuð í *skilríki, t.d. í *vegabréf

PERSÓNU-AFSLÁTTUR

persónuafsláttur er föst *upphæð sem maður fær í *afslátt af *tekjuskatti á hverju ári; persónuafslættinum er deilt niður á árið, t.d. á hvern mánuð sem maður fær borguð laun; til að fá persónuafslátt verður maður að skila *skattkorti til *launagreiðanda

PERSÓNUEFTIRLIT

persónueftirlit felst í því að *stjórnvöld fylgjast með einstaklingum, t.d. með fólki sem kemur inn í landið, m.a. með því að skoða *skilríki þess

PERSÓNUSKILRÍKI

persónuskilríki eru *opinber skjöl sem einstaklingar geta framvísað til þess að sanna hverjir þeir eru; í persónuskilríkjum er nafn þess sem á þau og ýmsar *persónuupplýsingar, t.d. fæðingardagur og heimilisfang, og yfirleitt mynd; persónuskilríki eru t.d. *vegabréf og *ökuskírteini

PERSÓNUUPPLÝSINGAR

persónuupplýsingar eru upplýsingar um einkahagi manns, t.d. *fjölskylduaðstæður og heimilisfang

PERSÓNUVERND

persónuvernd miðar að því að setja reglur um notkun *persónuupplýsinga og að hafa eftirlit með notkun þeirra til þess að koma í veg fyrir að upplýsingarnar séu misnotaðar+F119

PRÓF

próf eru spurningar og verkefni sem eru lögð fyrir *nemendur í *skóla eða á *námskeiði til þess að meta hvernig þeim hefur gengið að læra *námsefnið í ákveðinni *námsgrein, oft í lok *námsáfanga eða *námskeiðs

PRÓFGJALD

prófgjald er *upphæð sem fólk borgar fyrir að fá að taka *próf, t.d. í *einkaskólum eða á sérstökum *námskeiðum

PRÓFSKÍRTEINI

prófskírteini er *skírteini sem staðfestir að maður hafi lokið *prófum í tilteknum *námsgreinum úr *skóla eða *námskeiði

PRÓFUMSÓKN

prófumsókn er *umsókn um að fá að taka tiltekið *próf


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica