Orðskýringar

O

OPINBER

ef eitthvað er opinbert þá tilheyrir það *samfélaginu; t.d. er hið opinbera *ríki og *sveitarfélög og opinber mál eru mál rekin af ríki eða sveitarfélögum

ORLOF

orlof er ákveðinn fjöldi frídaga sem *launafólk í föstu starfi á rétt á að fá á hverju ári; orlof getur líka verið ákveðið hlutfall af launum fólks sem það fær greitt út til þess að geta tekið sér í frí frá vinnu

ORLOFSGREIÐSLUR

það eru orlofsgreiðslur þegar maður fær greitt út *orlof

ORLOFSHÚS

orlofshús er húsnæði sem *stéttarfélög leigja út til *félagsmanna sinna í stuttan tíma, t.d. yfir helgi eða í viku, svo þeir geti verið þar í *fríinu sínu

ORLOFSRÉTTUR

orlofsréttur fólks segir til um það hversu langt *orlof það á rétt á að fá


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica