Orðskýringar

N

NAUÐUNGARSALA

nauðungarsala á *eign, t.d. *íbúð eða bíl, fer fram ef *eigandinn getur ekki borgað *afborganir af *lánum eða *gjöld af eigninni og er neyddur til að selja hana til þess að borga upp í *skuldir;

NAUÐUNGARUPPBOÐ

nauðungaruppboð felst í því að selja *eignir manns fyrir hæsta verð sem hægt er að fá fyrir þær F311og afla þannig peninga til þess að borga upp í *skuldir hans

NÁM

nám felst í því að læra eitthvað á skipulegan hátt með því að fara í *skóla eða á *námskeið

NÁMSÁFANGI

námsáfangi í *skóla er sá hluti *námsgreinar sem er kenndur á einni önn og lýkur yfirleitt með *prófi

NÁMSÁRANGUR

námsárangur segir til um það hvernig nemendum hefur gengið að læra *námsefnið; námsárangur er oftast mældur með *prófi eða verkefnum og nemendur fá *einkunn sem sýnir árangur þeirra í hverri *námsgrein

NÁMSBÓK

námsbók er bók í tiltekinni *námsgrein sem *nemendur lesa og læra

NÁMSBRAUT

námsbraut í *skóla er leið sem *nemendur velja sér þar sem lögð er áhersla á ákveðnar *námsgreinar, t.d. *tungumál, *stærðfræði eða *verklegt nám

NÁMSDVÖL

námsdvöl felst í því að *nemandi býr eða dvelur einhvers staðar fjarri heimili sínu til að stunda þar *nám, t.d. í *útlöndum

NÁMSEFNI

námsefni er það sem *nemendur þurfa að læra í *skólanum eða á *námskeiði

NÁMSFLOKKAR

námsflokkar eru *menntastofnun utan *skólakerfisins þar sem fólk getur lært einstakar *námsgreinar á *námskeiðum, t.d. íslensku; námsflokkar eru á vegum *sveitarfélaga og námskeiðin eru aðallega fyrir fullorðið fólk sem er í vinnu og sækir kennslutíma á kvöldin

NÁMSGREIN

námsgrein er ákveðinn þáttur í því sem kennt er í *skóla, t.d. *stærðfræði, *landafræði eða *tungumál; *nám í skólum samanstendur af mörgum námsgreinum

NÁMSGÖGN

námsgögn eru t.d. bækur, ljósrituð blöð, myndir og annað efni sem er notað við *kennslu í *skóla eða á *námskeiði

NÁMSKEIÐ

námskeið er kennsla í ákveðinni *námsgrein sem stendur í takmarkaðan tíma, t.d. nokkrar vikur eða eina *önn

NÁMSKEIÐAHALD

námskeiðahald felst í því að halda *námskeið fyrir fólk

NÁMSKEIÐSGJALD

námskeiðsgjald er *upphæðin sem þarf að borga fyrir að sækja *námskeið

NÁMSLÁN

námslán er *lán úr *opinberum sjóði sem nemendur á *háskólastigi geta fengið samkvæmt ákveðnum reglum; nemendur þurfa ekki að borga afborganir af námsláninu fyrr en þeir hafa lokið námi

NÁMSLEYFI

námsleyfi er tímabundið frí frá *vinnu sem fólk fær til þess að stunda *nám, t.d. *endurmenntun

NÁMSMAÐUR

námsmaður er sá sem stundar *nám, aðallega á *háskólastigi

NÁMSSTYRKUR

námsstyrkur er styrkur sem fólk fær samkvæmt ákveðnum reglum til þess að stunda *nám; ýmsar *stofnanir veita námsstyrki, t.d. *bankar og *háskólar

NÁTTÚRUFRÆÐI

náttúrufræði er *námsgrein í *skóla þar sem nemendum er kennt um náttúruna, t.d. um stjörnurnar, myndun jarðar, dýr og líffræði mannsins

NEMANDI

nemandi er sá sem stundar *nám í *skóla

NET

net getur verið kerfi þar sem margar tölvur eru tengdar saman, t.d. innan fyrirtækis eða stofnunar; Netið er það sama og Internetið, það er samtenging milli tölva um allan heim sem gerir fólki t.d. mögulegt að skiptast á tölvupósti og að birta og lesa upplýsingar og gögn á *vefsíðum

NETBANKI

netbanki er það sama og *heimabanki

NETFANG

netfang er sérstakt póstfang sem notað er til að senda einstaklingi, stofnun eða fyrirtæki tölvupóst, t.d .xx@zzz.is

NEYÐARMÓTTAKA

neyðarmóttaka er sérstök þjónusta á *sjúkrahúsi þar sem m.a. er tekið á móti fólki sem verður fyrir nauðgun eða öðru kynferðisofbeldi

NEYÐARNÚMER

neyðarnúmer er sérstakt símanúmer sem fólk getur hringt í ef það þarf að fá *neyðarþjónustu, t.d. aðstoð *lögreglu eða *slökkviliðs; neyðarnúmer á Íslandi er 112

NEYÐARÞJÓNUSTA

neyðarþjónusta felst í því að aðstoða fólk sem þarf að fá hjálp strax, t.d. vegna skyndilegra veikinda eða slyss eða af því að fólk hefur týnt *greiðslukorti

NEYTANDI

maður er neytandi þegar maður kaupir vörur eða þjónustu af fyrirtækjum

NIÐURFELLING

niðurfelling felst í því að fella niður eða hætta við eitthvað sem hefur verið ákveðið; ef maður fær t.d. niðurfellingu á *gjöldum þýðir það að maður þarf ekki að borga þau


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica