Orðskýringar

I

IÐGJALDAGREIÐSLA

iðgjaldagreiðsla felst í því að maður borgar *iðgjald í *lífeyrissjóð eða til tryggingafélags

IÐJUÞJÁLFI

iðjuþjálfi hefur sérstaka menntun og réttindi til þess að starfa við *iðjuþjálfun

IÐJUÞJÁLFUN

í iðjuþjálfun fær fólk leiðbeiningu og þjálfun til að bjarga sér við dagleg störf og auka færni sína, t.d. eftir *veikindi eða *slys; hægt er að fá iðjuþjálfun á ýmsum *heilbrigðisstofnunum eins og *sjúkrahúsum og *hjúkrunarheimilum

IÐNSKÓLI

iðnskóli er *framhaldsskóli þar sem fólk stundar nám í iðngreinum, t.d. rafvirkjun, hárgreiðslu eða húsasmíði; í iðnskólum er aðallega stundað *verklegt nám

INNEIGN

ef maður á inneign í *banka þýðir það að maður á peninga sem maður hefur lagt inn á *bankareikning til geymslu; maður getur átt inneign hjá opinberri *stofnun ef maður hefur greitt meira en maður á að borga, t.d. í *skatt

INNFLUTNINGUR

innflutningur felst í því að vörur eru fluttar frá *útlöndum til landsins

INNHEIMTA

innheimta á *skuld miðar að því að fá mann sem skuldar peninga, t.d. vegna kaupa á vörum eða þjónustu, til að borga skuldina

INNISTÆÐA

innistæða á *bankareikningi er sú *upphæð sem maður á inni á reikningum

INNLÁNSVEXTIR

innlánsvextir eru *vextir sem *bankinn borgar fyrir peninga sem maður geymir á *bankareikningi

INNLENDUR

maður er innlendur í landi þar sem maður býr og hefur borgararéttindi, yfirleitt af því að maður er fæddur þar og alinn upp; það sem er innlent á uppruna sinn í landinu sem rætt er um, t.d eru innlendar vörur framleiddar innanlands

INNLÖGN

innlögn á *sjúkrahús á sér stað þegar *læknir hefur ákveðið eftir *læknisskoðun að *sjúklingur leggist inn á sjúkrahús vegna *veikinda eða *slyss og dvelji þar þangað til læknismeðferð er lokið

INNRITUN

innritun, t.d. í *skóla eða á *sjúkrahús, felst í því að maður er skráður sem *sjúklingur eða *nemandi við stofnunina

INNRITUNARGJALD

*nemendur í sumum *opinberum *framhaldsskólum og í *háskólum borga innritunargjald sem á að greiða *kostnað við skráningu nemenda í skólann o.fl.

INNRITUNARVOTTORÐ

innritunarvottorð frá *skóla er *skrifleg staðfesting á því að maður sé *nemandi í skólanum

INNSIGLI

innsigli er sérstakt merki sem er tákn t.d. stofnunar, *embættis eða *félags


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica