G
GAGNAGRUNNUR
gagnagrunnur er safn upplýsinga um ákveðið efni sem er geymt skipulega í tölvu til þess að auðveldlega sé hægt að leita að þeim upplýsingum sem fólk þarf hverju sinni
GAGNAÖFLUN
gagnaöflun felst í því að *gögnum og upplýsingum er safnað skipulega saman í ákveðnum tilgangi, t.d. til að rannsaka þau
GAGNKVÆMUR
ef eitthvað er gagnkvæmt þá virkar það í báðar áttir, t.d. ef *samningur er gagnkvæmur þá hefur hann sömu áhrif á báða aðila
GÁLEYSI
ef eitthvað er gert af gáleysi þá er það gert óviljandi
GEÐRÆNN SJÚKDÓMUR
ef maður fær geðrænan sjúkdóm verður maður andlega veikur; geðrænir sjúkdómar birtast m.a. í kvíða og þunglyndi
GETNAÐUR
það er getnaður þegar barn verður til í móðurkviði
GIFTAST
þegar fólk giftist þá gengur það í *hjónaband
GIFTING
gifting er athöfnin þegar karl og kona ganga í *hjónaband
GIFTUR
ef maður er giftur þá er maður í *hjónabandi með einhverjum
GILDISTAKA
gildistaka t.d. *samnings eða *laga felst í því að þau taka gildi og eftir það þarf fólk að fara eftir þeim
GILDISTÍMI
gildistími er sá tími sem eitthvað er í gildi, t.d. *samningur eða *lög
GISTIHEIMILI
gistiheimili er staður þar sem fólk getur gist á *ferðalagi; gistiheimili er oftast minna og ódýrara en hótel og þar er minni þjónusta
GISTISTAÐUR
gististaður er staður þar sem fólk getur gist, t.d. *gistiheimili eða hótel
GJALD
gjald er föst upphæð sem maður þarf að borga t.d. fyrir ákveðna þjónustu; gjald er oftast fyrirfram ákveðið og er ekki það sama og *kostnaður við þjónustuna, t.d. *innritunargjöld eða leikskólagjöld
GJALDDAGI
gjalddagi á *skuld, t.d. *reikningi fyrir vörur eða *afborgun af *láni, er dagurinn þegar maður á að borga hana
GJALDEYRIR
gjaldeyrir eru peningar í *erlendum *gjaldmiðli; maður kaupir gjaldeyri í *banka eða *sparisjóði, t.d. til þess að nota á ferðalögum *erlendis eða til þess að borga fyrir vörur sem maður kaupir frá *útlöndum
GJALDMIÐILL
gjaldmiðill er sú tegund af peningum sem er notuð í hverju landi, t.d. er gjaldmiðillinn á Íslandi íslensk *króna
GJALDSKRÁ
gjaldskrá er listi yfir hvað þarf að borga fyrir mismunandi *þjónustu, t.d. hjá fyrirtæki eða stofnun
GJALDTAKA
gjaldtaka felst í því að fólk þarf að borga fyrir ákveðna *þjónustu
GJALDÞROT
gjaldþrot verður þegar maður getur ekki borgað *skuldir sínar og þá eru *eignir manns seldar til þess að hægt sé að borga skuldirnar eða hluta þeirra; einstaklingur eða fyrirtæki sem hefur lent í gjaldþroti getur t.d. ekki átt eignir eða fengið *lán hjá lánastofnunum í ákveðinn tíma
GREIÐANDI
greiðandi er sá sem á að borga *reikning eða *greiðsluseðil, t.d. vegna *láns eða þjónustu sem hann kaupir
GREIÐSLA
greiðsla eru peningarnir sem maður borgar, t.d. fyrir vörur eða *þjónustu
GREIÐSLU-FJÁRHÆÐ
greiðslufjárhæð er *upphæðin sem maður þarf að borga fyrir t.d. vörur eða þjónustu og kemur fram á *reikningi eða *greiðsluseðli
GREIÐSLUKORT
greiðslukort er kort sem maður notar til þess að borga fyrir vörur og þjónustu eða taka pening út af *bankareikningi sem maður á; greiðslukort getur verið *debetkort eða *kreditkort
GREIÐSLUMAT
greiðslumat felst í því að skoða fjárhag og aðstæður fólks til þess að meta hvað það getur borgað af háu láni, t.d. til kaupa á *húsnæði; við greiðslumat eru t.d. athugaðar tekjur fólks, skuldir og eignir
GREIÐSLUSEÐILL
greiðsluseðill er tilkynning um að maður eigi að greiða ákveðna *upphæð á tilteknum degi, t.d. *afborgun af *láni eða *greiðslu fyrir rafmagn og hita; ef maður borgar *skuldina í *banka eða *sparisjóði er greiðsluseðillinn stimplaður og gildir sem *kvittun fyrir greiðslunni
GREIÐSLUTÍMABIL
greiðslutímabil er tíminn sem greitt er fyrir, t.d. er greiðslutímabil *launa yfirleitt einn mánuður
GREIÐSLU-ÞJÓNUSTA
greiðsluþjónusta er *samningur sem maður gerir við *bankann sinn og þá sér bankinn um að borga alla fasta *reikninga á réttum tíma, t.d. *afborganir af *lánum, síma, rafmagn og hita, og tekur *upphæðina út af ákveðnum *bankareikningi
GRUNNLAUN
grunnlaun eru föst *laun sem maður fær fyrir *vinnu sína fyrir utan allt *álag, t.d. vegna *vaktavinnu eða *yfirvinnu
GRUNNLÍFEYRIR
grunnlífeyrir er *lágmarksupphæð sem *lífeyrisþegar fá þegar þeir fá greiddan *lífeyri
GRUNNNÁMSKEIÐ
grunnnámskeið er *námskeið þar sem fólk lærir grunnatriði í einhverri grein
GRUNNSKÓLAALDUR
grunnskólaaldur er aldurinn frá 6 ára til 16 ára þegar börn eru í *grunnskóla
GRUNNSKÓLI
grunnskóli er *skóli sem börn fara í eftir *leikskóla; öll börn eiga að vera í grunnskóla frá 6 ára til 16 ára aldurs eða í 1.-10. *bekk
GÆLUNAFN
gælunafn er nafn sem fólk notar í staðinn fyrir *fornafn manneskju, aðallega fjölskylda hennar og nánir vinir, og er oftast stytting á fornafninu; ef maður sem heitir Jón er t.d. F49kallaður Nonni er það gælunafn hans
GÆSLUTÍMI
gæslutími er sá tími sem barn er í gæslu t.d. hjá *dagmóður
GÆSLUVARÐHALD
gæsluvarðhald felst í því að maður sem er grunaður um alvarlegt *afbrot eða glæp er settur í *fangelsi áður en búið er að dæma í málinu
GÖGN
gögn eru upplýsingar, t.d. skjöl, sem eru notaðar í ákveðnum málum; gögn geta t.d. verið *fylgigögn eða *sönnunargögn
GÖNGUDEILD
fólk kemur í *eftirlit eða meðferð á göngudeild *sjúkrahúsa og fær þar þjónustu *lækna, *hjúkrunarfræðinga og annars *heilbrigðisstarfsfólks og þarf þá ekki að leggjast inn á sjúkrahús
GÖNGUDEILD
fólk kemur í *eftirlit eða meðferð á göngudeild *sjúkrahúsa og fær þar þjónustu *lækna, *hjúkrunarfræðinga og annars *heilbrigðisstarfsfólks og þarf þá ekki að leggjast inn á sjúkrahús