Orðskýringar

F

FAÐERNISMÁL

faðernismál er mál fyrir *dómstólum sem er rekið til þess að staðfesta hver er faðir barns

FAGFÉLAG

fagfélag er *verkalýðsfélag eða *stéttarfélag fyrir fólk í ákveðinni *starfsgrein

FANGELSI

fangelsi er staður þar sem fólk *afplánar *dóma fyrir *afbrot sín

FANGELSISVIST

fangelsisvist er sá tími sem *fangar eru í *fangelsi

FANGI

fangi er maður sem *afplánar *dóm í *fangelsi

FARARTÆKI

farartæki er tæki sem flytur fólk og varning á milli staða, t.d. bíll, skip eða flugvél

FARSEÐILL

farseðill er *kvittun sem staðfestir að maður hafi keypt ákveðna ferð, t.d. með flugi til *útlanda eða á milli staða innanlands með strætó eða rútu; maður þarf venjulega að sýna farseðilinn þegar maður leggur af stað í ferðina

FARÞEGI

ef maður er farþegi, t.d. í bíl eða flugvél, þá ferðast maður með *farartækinu

FASTEIGN

fasteign er *húsnæði eða önnur eign sem er ekki hægt að færa úr stað

FASTEIGNAAUGLÝSING

fasteignaauglýsing er tilkynning, t.d. í dagblaði, þar sem fólk og fyrirtæki auglýsa *fasteignir til kaups eða sölu

FASTEIGNALÁN

fasteignalán er *lán sem fólk getur fengið hjá *lánastofnunum til þess að kaupa *fasteign

FASTEIGNASALA

fasteignasala er *fyrirtæki sem sérhæfir sig í að selja *fasteignir fyrir aðra

FASTEIGNASALI

fasteignasali er maður sem vinnur við að selja *fasteignir, oftast á sérstökum *fasteignasölum

FASTEIGNAVEÐBRÉF

fasteignaveðbréf er *skuldabréf með *veði í *fasteign

FEÐRALAUN

feðralaun eru greiðslur sem maður getur átt rétt á úr *almannatryggingum ef hann er *einstætt foreldri og með tvö eða fleiri börn undir 18 ára aldri á framfæri sínu

FERÐAFÓLK

ferðafólk er fólk sem er á *ferðalagi

FERÐAHEIMILD

ferðaheimild er sérstakt leyfi, t.d. frá *yfirvöldum eða *stofnun, til þess að fara í ákveðna ferð; fólk getur t.d. þurft að fá ferðaheimild til þess að sækja fund eða ráðstefnu í útlöndum á vegum stofnunar eða fyrirtækis sem það vinnur hjá

FERÐAKOSTNAÐUR

ferðakostnaður er sá *kostnaður sem kemur af ferðalögum

FERÐALAG

ef maður fer í ferðalag þá ferðast maður í lengri tíma, annaðhvort innanlands eða til *útlanda

FERÐASKILRÍKI

ferðaskilríki eru *persónuskilríki sem maður verður að hafa meðferðis þegar maður ferðast, yfirleitt *vegabréf

FERÐASKÍRTEINI

ferðaskírteini er það sama og *ferðaskilríki

FERÐATÉKKI

ferðatékki er *ávísun á fasta *upphæð í *erlendum *gjaldmiðli sem maður getur keypt í *banka og notað í stað peninga á ferðalögum í *útlöndum

FÉLAG

félag er hópur fólks sem starfar saman í ákveðnum tilgangi; t.d. eru til félög fólks sem hefur sömu *atvinnu eða *menntun og vinna þau að því að standa vörð um *réttindi félagsmanna sinna

FÉLAGSLEGAR BÆTUR

félagslegar bætur eru bætur sem fólk getur átt rétt á frá ríkinu við sérstakar aðstæður; félagslegar bætur eru t.d. *barnabætur og *heimilisuppbót

FÉLAGSMAÐUR

ef maður er félagsmaður í *samtökum eða félagi þá er maður meðlimur í þeim, greiðir félagsgjald E86 og tekur þátt í starfi þeirra á einhvern hátt

FÉLAGSMÁLA-RÁÐHERRA

félagsmálaráðherra er *ráðherra sem stýrir *félagsmálaráðuneytinu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar

FÉLAGSMÁLA-RÁÐUNEYTIÐ

félagsmálaráðuneytið er *ráðuneyti sem hefur yfirumsjón með samfélagsmálum í landinu, t.d. málum sem varða fjölskyldur, aldraðra og *öryrkja, *félagsþjónustu, vinnumál og málefni *innflytjenda; yfirmaður ráðuneytisins er *félagsmálaráðherra

FÉLAGSRÁÐGJAFI

félagsráðgjafi hefur sérstaka menntun og réttindi til þess að vinna með fólki, t.d. *sjúklingum, og veita því leiðbeiningar um félagsleg *réttindi sín; félagsráðgjafar leiðbeina fólki t.d. um *almannatryggingar

FÉLAGSÞJÓNUSTA

félagsþjónusta er *þjónusta sem *sveitarfélög veita íbúum sínum, t.d. öldruðum og fötluðum; félagsþjónusta felst t.d. í að útvega fólki *húsnæði eða veita því *fjárhagsaðstoð ef það þarf

FÉSEKT

fésekt er *sekt sem maður þarf að borga með peningum

FINGRAFAR

fingraför eru merki sem fingur fólks skilja eftir sig; fingraför hvers manns eru ólík fingraförum allra annarra og eru þess vegna stundum notuð til að bera kennsl á hann, t.d. sem *sönnunargögn í *dómsmálum

FJARKENNSLA

fjarkennsla fer þannig fram að *kennarar og *nemendur eru ekki á sama stað heldur fer *kennslan fram í gegnum *netið

FJARNÁM

fjarnám er *nám þar sem *kennslan fer fram í gegnum *netið og *nemendur geta því búið fjarri *skólanum og *kennurunum

FJARVIST

það er fjarvist þegar maður er ekki einhvers staðar þar sem maður á að vera, t.d. ef maður mætir ekki til *vinnu eða í *skóla vegna *veikinda

FJÁRFESTING

fjárfesting felst í því að maður leggur peninga í eitthvað sem ekki glatar verðgildi sínu og nýtist manni vel eða færir manni gróða, t.d. *húsnæði, fyrirtæki, *verðbréf o.fl.

FJÁRHAGSAÐSTOÐ

fjárhagsaðstoð er *lán eða *styrkur sem fólk fær til ákveðinna hluta, t.d. frá *sveitarfélaginu sínu, ef það hefur svo litlar *tekjur að það hefur ekki nóg til að borga fyrir nauðsynjar

FJÁRHÆÐ

fjárhæð er það sama og *upphæð

FJÁRMAGN

fjármagn er fé sem er notað t.d. í rekstur fyrirtækja og stofnana

FJÁRMÁL

fjármál eru öll mál sem tengjast peningum

FJÁRMÁLA-FYRIRTÆKI

starfsemi fjármálafyrirtækja snýst um *fjármál og allt sem þeim tengist; fjármálafyrirtæki eru t.d. *bankar, *sparisjóðir og verðbréfafyrirtæki

FJÁRMÁLARÁÐHERRA

fjármálaráðherra er *ráðherra sem stýrir *fjármálaráðuneytinu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar

FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ

fjármálaráðuneytið er *ráðuneyti sem hefur yfirumsjón með *fjármálum ríkisins; yfirmaður ráðuneytisins er *fjármálaráðherra

FJÁRRÁÐ

ef maður hefur fjárráð þá hefur maður *forræði yfir eignum sínum

FJÁRRÆÐI

ef maður hefur fjárræði þá ræður maður sjálfur yfir peningunum sínum; almennt hefur fólk frá 18 ára aldri fjárræði á Íslandi

FJÖLBRAUTASKÓLI

fjölbrautaskóli er *framhaldsskóli með mörgum *námsbrautum þar sem fólk getur stundað bæði *verklegt nám, t.d. iðnnám, og *bóklegt nám til *stúdentsprófs

FJÖLSKYLDA

fjölskylda manns er oftast *maki manns og börn eða *foreldrar, systkini og nánustu *ættingjar

FJÖLSKYLDUAÐSTÆÐUR

fjölskylduaðstæður hjá fólki felast t.d. í því hvort fólk er *gift eða í *sambúð, hvort það á börn og hversu margir eru í *fjölskyldunni

FJÖLSKYLDUBÆTUR

fjölskyldubætur eru bætur sem fjölskyldur geta átt rétt á við sérstakar aðstæður til að standa undir miklum *útgjöldum

FJÖLSKYLDUMEÐLIMIR

fjölskyldumeðlimir eru allir sem tilheyra fjölskyldunni, t.d. faðir, móðir, börn, afi og amma

FJÖLSKYLDUTENGSL

fjölskyldutengsl á milli fólks segja til um hvernig það er skylt, t.d. eru fjölskyldutengsl systkina þannig að þau eiga sömu foreldra

FLÓTTAMANNARÁÐ

flóttamannaráð er hópur fólks sem vinnur á vegum *stjórnvalda við að sjá um móttöku *flóttamanna til landsins

FLUGVÖLLUR

flugvöllur er sérstakt svæði þar sem flugvélar fara af stað og lenda; maður fer út á flugvöll þegar maður ætlar að ferðast með flugvél

FORELDRAR

foreldrar manns eru faðir manns og móðir

FORNAFN

fornafn er fyrsta nafn manns, það nafn sem manni er gefið, t.d. við skírn; fornafn Jóns Sigurðssonar er t.d. Jón

FORRÁÐAMAÐUR

forráðamaður barns eða unglings er það sama og *forsjáraðili; forráðamaður fyrirtækis eða stofnunar er yfirmaður eða stjórnandi þess

FORRÆÐI

ef maður hefur forræði yfir einhverju, t.d. börnum eða peningum, þá ræður maður yfir þeim og ber ábyrgð á þeim

FORSJÁ

ef maður fer með forsjá barns þá ber maður ábyrgð á því og hefur skyldur til að sjá fyrir því; ef foreldrar barns skilja getur annað hvort foreldrið haft forsjá með barninu eða báðir foreldrarnir haft sameiginlega forsjá með því

FORSJÁRAÐILI

forsjáraðili barns eða unglings er manneskja sem ber ábyrgð á honum og ræður yfir honum t.d. fjárhagslega, oftast foreldri eða foreldrar

FORSJÁRMAÐUR

ef maður er forsjármaður barns þá fer maður með *forsjá þess

FORVARNIR

forvarnir eru aðgerðir til þess að koma í veg fyrir eitthvað slæmt, t.d. að fólk verði alvarlega veikt eða að unglingar byrji að reykja eða drekka áfengi

FÓSTUREYÐING

kona á rétt á að fara í fóstureyðingu á *sjúkrahúsi ef hún er *barnshafandi en telur sig ekki geta eignast barnið af sérstökum ástæðum; fóstureyðingu má aðeins framkvæma á fyrstu vikum *meðgöngunnar

FRAMBJÓÐANDI

frambjóðandi er einstaklingur sem býður sig fram í *kosningum til að gegna ákveðinni stöðu eða embætti

FRAMBOÐ

ef einhver er í framboði þá getur fólk kosið hann í *kosningum; bæði einstaklingar og flokkar geta verið í framboði

FRAMFÆRI

maður er á framfæri einhvers ef hann sér um *framfærslu manns, t.d. eru börn á framfæri foreldra sinna

FRAMFÆRSLA

framfærsla felst í því að sjá fyrir daglegum þörfum sínum eða annarra, aðallega mat, *húsnæði og fatnaði; foreldrar sjá t.d. um framfærslu barna sinna

FRAMFÆRSLUSTYRKUR

framfærslustyrkur er peningaaðstoð sem fólk getur fengið til *framfærslu frá *sveitarfélaginu sínu eða *ríkinu við sérstakar aðstæður

FRAMFÆRSLUVOTTORÐ

framfærsluvottorð er *skrifleg yfirlýsing frá *sveitarfélagi sem staðfestir að maður hafi ekki fengið *framfærslustyrk í ákveðinn tíma

FRAMHALDSNÁMSKEIÐ

framhaldsnámskeið er *námskeið sem fólk getur farið á eftir að hafa lokið *grunnnámskeiði í sömu grein til þess að bæta við sig þekkingu í greininni

FRAMHALDSSKÓLASTIG

fólk sem stundar *nám á framhaldsskólastigi er í *framhaldsskóla, t.d. í menntaskóla, *iðnskóla eða fjölbrautarskóla

FRAMHALDSSKÓLI

framhaldsskóli er *skóli sem fólk getur farið í eftir að hafa lokið *skyldunámi í *grunnskóla um 16 ára aldur; framhaldsskólar bjóða upp á *bóklegt nám eða *verklegt nám og *nemendur velja skóla eftir áhugasviði sínu

FRAMLENGING

framlenging felst í því að maður *framlengir eitthvað

FRAMLENGJA

þegar maður framlengir eitthvað þá lengir maður tímann sem það varir; ef maður framlengir *víxil eða *lán þá fær maður lengri frest til að borga það til baka en samið var um í upphafi

FRAMSAL

framsal á fólki felst í því að afbrotamaður er afhentur *yfirvöldum í öðru landi til þess að dæma hann fyrir *afbrot sem hann framdi þar eða til þess að láta hann *afplána *dóm í *heimalandi sínu; framsal á skjölum felst í því að afhenda öðrum þau til eignar og staðfesta það með *undirskrift

FRAMTAL

framtal er það sama og *skattframtal

FRAMVÍSUN

framvísun, t.d. *skilríkis eða skjals, felst í því að maður sýnir það í ákveðnum tilgangi, t.d. til að sanna hver maður er eða til að fá *afslátt af þjónustu

FRÁDRÁTTUR

frádráttur frá *skatti felst í því að maður þarf ekki að borga skatt af *tekjum eða greiðslum sem maður hefur notað í ákveðnum tilgangi, t.d. til að framfleyta börnum sem eru í *framhaldsskóla og það sem maður borgar í *lífeyrissjóð

FRÁFALL

fráfall er það sama og *andlát

FRÁVÍSUN

frávísun felst í því að einhverju er hafnað eða vísað frá, t.d. þegar máli er vísað frá dómi

FRESTUN

frestun felst í því að *frestur á einhverju er *framlengdur

FRESTUR

frestur er tíminn sem er gefinn til þess að gera eitthvað, t.d. til að skila umsókn eða skýrslu; ef maður fær frest til ákveðins dags til að ljúka verkefni þá verður maður að ljúka því í síðasta lagi á þeim degi

FRÍ

frí er ákveðinn tími sem fólk fær frá vinnunni til að sinna öðru; maður á rétt á að fá reglubundið frí frá vinnunni samkvæmt *ráðningarsamningi, t.d. í ákveðinn tíma á sumrin

FRÍÐINDI

fríðindi eru ýmiss konar ávinningur sem fólk fær í tengslum við starf sitt eða ákveðin *viðskipti; fríðindin geta t.d. falist í því að *starfsmaður hefur afnot af bíl sem fyrirtækið á, fær ókeypis síma eða að *viðskiptavinur fær viðbótarþjónustu

FRUMRIT

frumrit t.d. skjals er eintakið sem er fyrst búið til af því

FRÆÐSLA

fræðsla er *kennsla eða leiðsögn sem fólk fær t.d. í *skólum eða á *námskeiðum

FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ

fræðslumiðstöð er *stofnun á vegum *sveitarfélaga eða samtaka sem skipuleggur og stjórnar *fræðslu eða skólastarfi á ákveðnu sviði eða á ákveðnu landsvæði

FULLNAÐAR-

fullnaðar- fremst í orði merkir að það sem felst í orðinu sé endanlegt eða að því sé lokið, t.d. fullnaðarafgreiðsla, fullnaðarleyfi

FULLNÆGJANDI

þegar eitthvað er fullnægjandi þá er það nógu gott eða nógu mikið miðað við þær kröfur eða þau skilyrði sem voru ákveðin

FULLORÐINN

þegar maður er fullorðinn ber maður sjálfur ábyrgð á hag sínum og fjármálum; á Íslandi verður maður fullorðinn við 18 ára aldur

FULLORÐINSFRÆÐSLA

fullorðinsfræðsla er *kennsla fyrir fullorðið fólk, t.d. á *námskeiðum, bæði *starfsmenntun og *tómstundanámskeið

FULLTRÚI

ef maður er fulltrúi einhvers einstaklings eða hóps hefur maður verið valinn eða kosinn til að koma fram fyrir hönd hans, t.d. eru þingmenn fulltrúar *kjósenda sinna

FYLGDARMAÐUR

fylgdarmaður einhvers fer með honum þangað sem hann þarf að fara, t.d. hafa mjög veikir *sjúklingar með sér fylgdarmann ef þeir þurfa að fara á milli landshluta eða til *útlanda til lækninga

FYLGIGÖGN

fylgigögn eru *skjöl eða önnur *gögn sem fylgja með t.d. *umsókn eða skýrslu

FYLLA ÚT

þegar maður fyllir út *eyðublað þá skrifar maður það sem beðið er um í viðeigandi reiti eða línur á blaðinu

FYRIRFRAM-GREIÐSLA

maður fær fyrirframgreiðslu ef maður fær t.d. *laun eða *bætur borgaðar út áður en greiðsludagur þeirra er

FYRIRMÆLI

fyrirmæli eru lýsing á því sem maður á að gera eða reglur um það

FYRIRSPURN

fyrirspurn er spurning sem maður ber fram formlega, t.d. á fundi eða til fyrirtækis

FYRIRTÆKI

fyrirtæki er *stofnun sem stundar ákveðna *atvinnustarfsemi og hefur fólk í vinnu, t.d. verslun eða verksmiðja

FYRIRVARI

fyrirvari er tíminn sem líður frá því að maður veit að eitthvað mun gerast og þangað til það gerist eða frá því að tilkynnt er um eitthvað og þangað til því á að vera lokið; ef maður byrjar t.d. að gera eitthvað með góðum fyrirvara fær maður nógan tíma til að ljúka því; fyrirvari er líka skilyrði sem eru sett fyrir einhverju, t.d. ef maður lofar að gera eitthvað á tilteknum tíma með þeim fyrirvara að einhverju öðru sé lokið áður

FYRIRVINNA

ef maður er fyrirvinna þá vinnur maður fyrir þeim peningum sem þarf til að sjá fyrir fjölskyldunni og borga *útgjöld heimilisins

FÆÐINGARORLOF

fæðingarorlof er leyfi frá launuðum störfum sem foreldrar fá við fæðingu barns til þess að annast það fyrstu vikurnar; foreldrarnir skipta fæðingarorlofinu á milli sín eftir ákveðnum reglum og fá greidd laun eða bætur úr *fæðingarorlofssjóði á meðan

FÆÐINGARORLOFS-SJÓÐUR

fæðingarorlofssjóður er sérstakur sjóður á vegum ríkisins sem sér um að foreldrar í *fæðingarorlofi fái fastar greiðslur

FÆÐINGAR-STYRKUR

*foreldrar geta fengið fæðingarstyrk í staðinn fyrir *fæðingarorlof ef þeir eru t.d. ekki í vinnu og uppfylla því ekki skilyrði fyrir að fá fæðingarorlof

FÆÐINGARVOTTORÐ

fæðingarvottorð er *vottorð sem staðfestir hvar og hvenær maður er fæddur

FÖTLUN

það er fötlun þegar fólk getur ekki tekið fullan þátt í daglegu lífi vegna líkamlegs eða andlegs skaða sem það hefur orðið fyrir, t.d. vegna sjúkdóms eða slyss


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica