D
DAGMAMMA
dagmamma er það sama og *dagmóðir
DAGMÓÐIR
dagmóðir er kona sem vinnur við að gæta ungra barna á heimili sínu á daginn á meðan foreldrar sækja t.d. vinnu
DAGPENINGAR
dagpeningar eru ákveðin *upphæð á dag sem fólk fær úr *almannatryggingum eða frá tryggingafélagi eftir ákveðnum reglum, t.d. ef maður verður óvinnufær vegna *veikinda eða *slyss; dagpeningar geta líka verið greiðslur sem maður fær frá *vinnuveitanda sínum til þess að greiða *kostnað við ferðir og uppihald ef maður er sendur í ferðalag á vegum fyrirtækisins eða þarf að vinna tímabundið fjarri heimili sínu
DAGSETNING
dagsetning er mánaðardagur, mánuður og ár, t.d. 1. janúar 2007; dagsetning er sett t.d. á bréf eða *skjal
DAGVINNULAUN
dagvinnulaun eru þau *laun sem maður fær fyrir að vinna reglulegan *vinnudag, t.d. frá kl. 9-17
DÁNARBÚ
dánarbú eru allar eigur sem fólk lætur eftir sig þegar það deyr, t.d. húsnæði og peningar
DÁNARBÆTUR
dánarbætur eru *bætur úr *almannatryggingum eða *stéttarfélagi sem fólk getur átt rétt á samkvæmt ákveðnum reglum ef maki þess deyr; barn á *framfæri foreldra sinna getur einnig átt rétt á dánarbótum ef foreldri þess deyr
DEBETKORT
debetkort er *greiðslukort sem tengist *bankareikningi manns; þegar debetkort er notað til þess að borga fyrir vörur og þjónustu eða til þess að taka út peninga í *hraðbanka dregst upphæðin strax frá *innistæðunni á *bankareikningnum
DÓMARI
dómari er lögfræðimenntaður embættismaður sem stjórnar *réttarhöldum og kveður upp *dóma
DÓMSMÁL
dómsmál er mál sem er rekið fyrir *dómstólum
DÓMSMÁLARÁÐHERRA
dómsmálaráðherra er *ráðherra sem stýrir *dómsmálaráðuneytinu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
dómsmálaráðuneytið er *ráðuneyti sem hefur yfirumsjón með öllum málum sem snerta lög og reglu í landinu; yfirmaður ráðuneytisins er *dómsmálaráðherra
DÓMSTÓLL
dómstóll er *opinber stofnun þar sem *réttarhöld fara fram og *dómar eru kveðnir upp
DÓMUR
dómur er ákvörðun sem *dómarar taka um mál fyrir rétti og er *dómurinn sem þeir kveða upp niðurstaða *réttarhaldanna
DRÁTTARVEXTIR
dráttarvextir bætast við *skuld sem er ekki borguð á réttum tíma og eru ákveðið hlutfall af *upphæðinni sem átti að greiða fyrir hvern dag sem líður frá *gjalddaga þangað til skuldin er borguð
DÆMDUR
ef maður er dæmdur þá hlýtur hann *dóm fyrir það sem hann hefur gert og þarf að greiða sekt eða taka út *refsingu eftir því sem *dómari ákveður