Orðskýringar

A

AÐILD

ef maður á aðild að einhverju, t.d. *félagi eða *samtökum, tekur maður þátt í starfi þeirra og fær þau *réttindi sem fylgja aðildinni; félag, stofnun eða *ríki getur líka átt aðild að stórum samtökum

AÐLÖGUN

aðlögun miðar að því að fólk venjist nýjum aðstæðum og falli inn í hóp, t.d. á vinnustað, á leikskóla eða í nýju landi

AÐSTANDANDI

ef maður er aðstandandi einhvers þá er maður *ættingi hans, t.d. foreldri eða systkini; aðstandendur atburðar eða verkefnis eru þeir sem taka þátt í því eða standa að því

AFBORGUN

afborgun er greiðsla af *láni sem maður hefur fengið, t.d. í *banka; maður borgar venjulega lánið og *vextina af því með reglulegum afborgunum, t.d. í hverjum mánuði, þangað til allt lánið er greitt

AFBORGUNARTÍMI

afborgunartími er sá tími sem maður þarf að borga af *láni þangað til það er allt greitt

AFBROT

ef fólk fremur afbrot þá gerir það eitthvað af sér sem brýtur gegn *lögum

AFPLÁNA

þegar fólk afplánar t.d. fangelsisdóm þá tekur það út *refsingu með því að sitja í *fangelsi í ákveðinn tíma

AFRIT

afrit af t.d. skjali er annað eintak af því, t.d. ljósrit af *reikningi eða *vottorði

AFSAL

afsal er *skrifleg *yfirlýsing sem staðfestir að maður eigi eign sem maður hefur keypt, t.d. bíl eða *húsnæði

AFSKRÁNING

afskráning felst í því að bíll er tekinn af skrá og þá þarf ekki að borga *tryggingar og önnur gjöld af honum; þegar bíll er afskráður skilar maður bílnúmerinu og þá má ekki keyra hann

AFSLÁTTUR

afsláttur er lækkun á verði á vörum eða þjónustu; ef verslun gefur afslátt á vörum er verðið yfirleitt lækkað um ákveðna prósentutölu

AFTURKALLA

þegar maður afturkallar eitthvað, t.d. leyfi eða umboð, þá tekur maður það aftur eða ógildir það

AFTURKÖLLUN

afturköllun felst í því að maður *afturkallar eitthvað

ALMANAKSÁR

eitt almanaksár er tíminn frá 1. janúar til 31. desember á sama ári

ALMANNATRYGGINGAR

almannatryggingar eru *opinbert tryggingakerfi sem allir landsmenn eiga aðild að og greiða fyrir með *sköttunum sínum; almannatryggingar greiða t.d. fyrir *sjúkrahúsvist, *lækniskostnað og *lyf eftir ákveðnum reglum og eiga að tryggja öllum lágmarksframfærslu; undir almannatryggingar falla t.d. *ellilífeyrir, *örorkulífeyrir, *slysatryggingar og *sjúkratryggingar

ALÞINGI

Alþingi er þjóðþing Íslendinga sem m.a. setur lög

ALÞJÓÐA-

ef alþjóða- stendur framan við orð þá merkir það að orðið vísar til einhvers sem varðar margar þjóðir eða lönd; t.d. er alþjóðasamningur *samningur milli margra þjóða

ALÞJÓÐLEGUR

ef eitthvað er alþjóðlegt þá snertir það margar þjóðir eða nær til stórs hluta heimsins

ANDLÁT

það er andlát þegar einhver deyr

ANDMÆLARÉTTUR

andmælaréttur felst í því að einstaklingar eiga lögbundinn rétt til að segja sína skoðun á ákvörðun *stjórnvalda og til að mótmæla henni

APÓTEK

apótek er *verslun þar sem eru seld *lyf, hjúkrunarvörur, snyrtivörur og fleira

ATKVÆÐAGREIÐSLA

atkvæðagreiðsla felst í því að greiða *atkvæði í *kosningum og velja þannig á milli einstaklinga eða flokka sem eru í *framboði eða gefa álit sitt F132á ákveðnu málefni

ATKVÆÐASEÐILL

atkvæðaseðill er sérstakt *eyðublað sem maður fær afhent við *kosningar til þess að merkja við þann lista eða einstakling sem maður ætlar að kjósa

ATKVÆÐI

atkvæði er það álit sem maður gefur í *kosningum; ef maður greiðir t.d. ákveðnum stjórnmálaflokki atkvæði sitt í alþingiskosningum þýðir það að maður kýs hann

ATVINNA

atvinna er starf sem maður fær *laun fyrir

ATVINNUAUGLÝSING

atvinnuauglýsing er texti sem er birtur opinberlega, t.d. í dagblaði eða á netinu, þar sem er óskað eftir fólki í *vinnu

ATVINNULAUS

ef maður er atvinnulaus þá hefur maður enga *vinnu þó að maður sé *vinnufær

ATVINNULEIT

atvinnuleit felst í því að maður leitar að *vinnu, t.d. með því að skoða *atvinnuauglýsingar eða hafa samband við *vinnumiðlun

ATVINNULEYFI

atvinnuleyfi er formlegt leyfi frá *yfirvöldum til þess að stunda *vinnu í landinu

ATVINNULEYSI

atvinnuleysi er það ástand þegar lítil *vinna er í boði fyrir fólk í *atvinnuleit

ATVINNULEYSISBÆTUR

atvinnuleysisbætur eru *greiðslur sem fólk á rétt á samkvæmt ákveðnum reglum ef það fær enga *vinnu; fólk þarf að skrá sig hjá *vinnumiðlun til þess að fá atvinnuleysisbætur

ATVINNULEYSISTRYGGINGAR

atvinnuleysistryggingar eru *tryggingar sem veita fólki rétt til að fá *atvinnuleysisbætur ef það fær ekki vinnu

ATVINNUMIÐLUN

atvinnumiðlun er það sama og *vinnumiðlun

ATVINNUREKANDI

atvinnurekandi á eða stjórnar fyrirtæki sem hefur fólk í *vinnu og borgar því *laun

ATVINNUREKSTUR

atvinnurekstur felst í því að stjórna fyrirtæki sem hefur *starfsmenn í vinnu og greiðir þeim *laun

ATVINNURÉTTINDI

atvinnuréttindi fólks eru réttindi þess til að stunda *atvinnu

ATVINNUSJÚKDÓMUR

atvinnusjúkdómur er *sjúkdómur sem fólk fær vegna *vinnu sinnar, t.d. vegna þess að það er mengun á *vinnustaðnum eða af því að það beitir líkamanum rangt við vinnuna

ATVINNUSTARFSEMI

atvinnustarfsemi felst í því starfi sem er unnið í fyrirtækjum, t.d. verslun, þjónustu eða framleiðslu

ATVINNUTILBOÐ

ef maður fær atvinnutilboð frá einhverjum þá býður hann manni að vinna fyrir sig

ATVINNUÞÁTTTAKA

atvinnuþátttaka felst í því að stunda *vinnu


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica