Ú
ÚRLAUSN
þegar úrlausn fæst í einhverju máli þá er búið að leysa úr málinu
ÚRRÆÐI
úrræði er leið til lausnar á ákveðnum málum, t.d. er sérkennsla úrræði fyrir börn með sérþarfir í *skólakerfinu
ÚRSKURÐUR
úrskurður er ákvörðun, t.d. dómara eða sýslumanns, sem verður að fara eftir
ÚTBORGUN
útborgun felst í því að maður fær *launin sín greidd frá *launagreiðanda
ÚTGÁFA
útgáfa felst í því að birta eitthvað opinberlega, t.d. bók eða tímarit; það er líka talað um útgáfu ýmiss konar *skjala og *skilríkja, t.d. *vegabréfa, þegar þau eru tilbúin og afhent
ÚTGÁFUDAGUR
útgáfudagur er dagurinn þegar eitthvað er gefið út
ÚTGÁFULAND
útgáfuland er landið þar sem eitthvað er gefið út
ÚTGÁFURÍKI
útgáfuríki er það sama og *útgáfuland
ÚTGÁFUSTAÐUR
útgáfustaður er staðurinn þar sem eitthvað er gefið út, t.d. bær eða borg
ÚTGJÖLD
útgjöld eru þeir peningar sem maður eyðir í reglulegan *kostnað, t.d. *afborganir af *lánum, til þess að borga *reikninga og kaupa mat
ÚTIVISTARTÍMI
útivistartími er sá tími sem fólki er leyft að vera á ferli úti; t.d. eru reglur um útivistartíma barna sem er breytilegur eftir aldri og árstíma
ÚTLÁNSVEXTIR
útlánsvextir eru *vextir sem maður þarf að borga af *láni sem maður tekur í *banka eða hjá lánasjóði
ÚTLENDINGALÖG
útlendingalög eru sérstök *lög sem *alþingi hefur sett um *útlendinga á Íslandi
ÚTLENDINGASTOFNUN
útlendingastofnun er stofnun á vegum *ríkisins sem sér t.d. um útgáfu *dvalar- og *atvinnuleyfa til *útlendinga og útgáfu vegabréfa fyrir íslenska ríkisborgara
ÚTLENDINGUR
maður er útlendingur í landi þar sem maður á ekki heima eða þar sem maður er ekki fæddur og alinn upp
ÚTLÖND
útlönd eru önnur lönd en það sem maður miðar við eða horfir frá, en það er oftast landið þar sem maður býr; á Íslandi eru t.d útlönd öll önnur lönd en Ísland
ÚTREIKNINGUR
útreikningur sýnir hvernig eitthvað er reiknað út, t.d. *kostnaður við *lán
ÚTRUNNINN
þegar eitthvað er útrunnið þá er tími þess liðinn; ef matvara er útrunnin þá er síðasti dagur sem má borða matinn liðinn; ef *frestur er útrunninn þá er tíminn sem maður hafði til þess að gera eitthvað eða skila einhverju liðinn