Orðskýringar

Ö

ÖKUKENNARI

ökukennari hefur sérstök réttindi til að kenna fólki að keyra bíla eða mótorhjól

ÖKULEYFI

fólk þarf að hafa sérstakt ökuleyfi frá *yfirvöldum til þess að mega keyra t.d. bíl eða mótorhjól; áður en maður fær ökuleyfi verður maður að taka *ökupróf hjá *ökukennara

ÖKUMAÐUR

ef maður er ökumaður t.d. í bíl þá situr maður undir stýri og stjórnar bílnum

ÖKUPRÓF

maður verður að taka ökupróf hjá *ökukennara til þess að fá leyfi til þess að keyra t.d. bíl

ÖKUSKÍRTEINI

ökuskírteini er *skírteini sem staðfestir að maður hafi *ökuleyfi

ÖKUTÆKI

ökutæki er tæki sem er hægt að keyra, t.d. bíll eða mótorhjól

ÖLDRUN

það er öldrun þegar fólk verður gamalt

ÖLDUNGADEILD

öldungadeild er *framhaldsskólanám fyrir fullorðið fólk sem hefur hætt í *skóla en vill ljúka *námi t.d. með því að taka *kvöldnámskeið samhliða vinnu

ÖNN

ein önn er tímabil sem *námsáfangi eða *námskeið er kennt, t.d. tíminn frá lokum ágústmánaðar fram í desember (haustönn) eða frá janúar og fram í júní (vorönn)

ÖRORKA

örorka er skert færni og geta til að vinna eftir *slys eða *veikindi; *tryggingalæknir metur örorku og matið ræður því hversu mikill *örorkulífeyrir er greiddur

ÖRORKUBÆTUR

örorkubætur eru bætur sem fólk getur átt rétt á úr *almannatryggingum, tryggingafélögum eða *lífeyrissjóðum ef það er metið sem *öryrkjar eftir *veikindi eða *slys

ÖRORKULÍFEYRIR

örorkulífeyrir er mánaðarleg *greiðsla sem *örorkulífeyrisþegar eiga rétt á úr *almannatryggingum eða *lífeyrissjóði

ÖRORKULÍFEYRISÞEGI

maður er örorkulífeyrisþegi ef maður er *öryrki og á rétt á *örorkulífeyri

ÖRORKUMAT

*tryggingalæknir sér um örorkumat þar sem kemur fram hvaða *örorkustig um er að ræða, þ.e. hversu mikil *örorka fólks er

ÖRORKUSTIG

örorkustig segir til um hversu mikil *örorka fólks er

ÖRORKUSTYRKUR

örorkustyrkur er mánaðarleg *greiðsla úr *almannatryggingum sem maður getur átt rétt á ef maður er *öryrki

ÖRORKUVOTTORÐ

örorkuvottorð er *vottorð frá *lækni sem segir til um hvað veldur *örorku hjá fólki

ÖRYGGI

öryggi á vinnustað felst í því að gæta þess að starfsmenn slasist ekki eða skaði sig við vinnu sína, t.d. með því að láta fólk nota nauðsynlegan *öryggisbúnað

ÖRYGGISBÚNAÐUR

öryggisbúnaður er sérstakur fatnaður, t.d. hjálmur, eða tæki sem varna því að fólk slasist eða skaði sig við vinnu

ÖRYRKI

öryrkjar eru þeir sem hafa skerta færni og getu til að vinna eftir *slys eða *veikindi; margir öryrkjar eiga rétt á *opinberum greiðslum en þeir búa við mismikla *örorku og réttindi þeirra taka mið af *örorkumati


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica