Ó
ÓFULLNÆGJANDI
ef eitthvað er ófullnægjandi þá er það ekki nógu mikið eða nógu gott miðað við það sem er krafist eða gert ráð fyrir
ÓGILDING
ógilding á einhverju felst í því að það er fellt úr gildi og hætt við það; t.d. felur ógilding *samnings í sér að hann gildir ekki lengur
ÓHEIMILL
ef eitthvað er óheimilt þá er það bannað
ÓKEYPIS
ef eitthvað er ókeypis þá kostar það ekki neitt
ÓLÖGLEGUR
það sem er ólöglegt er ekki leyfilegt samkvæmt lögum
ÓLÖGMÆTUR
ólögmætur er það sama og *ólöglegur
ÓLÖGRÁÐA
fólk sem er ólögráða hefur ekki full réttindi, t.d. til að kjósa eða ráða yfir eigin fjárhag; börn og unglingar undir 18 ára aldri eru t.d. ólögráða
ÓNÝTTUR PERSÓNU-AFSLÁTTUR
ónýttur persónuafsláttur er sá hluti *persónuafsláttar sem maður hefur ekki notað, t.d. vegna þess að maður hefur verið tekjulaus í einhvern tíma; *hjón eða fólk í *sambúð getur líka nýtt sér ónýttan persónuafslátt *maka síns eftir ákveðnum reglum ef hann nýtir ekki allan persónuafslátt sinn sjálfur