Á
ÁBYRGÐ
ef maður gengur í ábyrgð fyrir einhvern sem tekur *lán lofar maður að borga lánið til baka ef sá sem tók það getur ekki borgað það sjálfur; ef það er ábyrgð á vörum sem maður kaupir lofar fyrirtækið sem selur manni þær að að gera *ókeypis við það sem bilar innan ákveðins tíma eða borga fyrir viðgerðina
ÁFANGAKERFI
í *framhaldsskólum þar sem er áfangakerfi eru ekki *bekkir eða *árgangar heldur þurfa *nemendur að ljúka ákveðnum fjölda *áfanga í hverri *námsgrein, t.d. til *stúdentsprófs
ÁFANGI
áfangi í *skóla er sá hluti *námsgreinar sem er kenndur á einni *önn og lýkur yfirleitt með *prófi
ÁKVARÐA
ef einhver ákvarðar eitthvað þá ákveður hann að það sé niðurstaðan
ÁKVÆÐI
ákvæði eru reglur eða *fyrirmæli sem fólk þarf að fara eftir, t.d. í *lögum og *samningum
ÁKVÖRÐUN
ef tekin er ákvörðun felst það í því að eitthvað er ákveðið eða *ákvarðað
ÁLAG
ef maður fær greitt álag fyrir vinnu þá fær maður greitt meira en föst laun, t.d. vegna þess að maður hefur unnið *yfirvinnu; ef maður er undir álagi, t.d. í vinnunni, þá er mikið að gera hjá manni
ÁLAGNING
álagning felst í því að *skattar eru lagðir t.d. á *tekjur fólks; álagning á vörur eða þjónustu felst í því að verðið fyrir það er ákveðið
ÁLAGNINGARSEÐILL
álagningarseðill er árlegt yfirlit frá *skattayfirvöldum sem sýnir hvað maður á að borga í *skatta á árinu, hvað maður er þegar búinn að borga í *staðgreiðslu og hvað maður skuldar eða á inni hjá skattinum
ÁMINNING
ef maður fær áminningu fyrir eitthvað sem maður hefur gert rangt þá fær maður tiltal og er varaður við því að gera það aftur; ef manni er veitt áminning vegna einhvers sem maður hefur gert í vinnunni getur maður fengið *sekt fyrir það eða misst vinnuna ef maður gerir það aftur
ÁRGANGUR
árgangur er sá hópur *nemenda sem er fæddur á sama ári
ÁRITUN
áritun er *undirskrift á skjal í ákveðnum tilgangi, t.d. *vegabréfsáritun frá yfirvöldum eða áritun á *skuldabréf
ÁRITUNARSKYLDUR
ef maður er áritunarskyldur þá verður maður að hafa *vegabréfsáritun
ÁVÍSUN
ávísun er sérstakt *eyðublað frá *banka eða *sparisjóði sem maður fyllir út og notar í staðinn fyrir peninga til að borga fyrir vörur eða þjónustu; þegar ávísun er innleyst er *upphæðin tekin af *tékkareikningi manns