Fara beint í efnið

Ófrjósemi og tæknifrjóvgun

Þeir sem vilja leita meðferðar við ófrjósemi geta snúið sér beint til IVF-Klíníkurinnar í Reykjavík sem starfar með leyfi heilbrigðisráðuneytis. Einnig má leita til síns læknis eða sérfræðings.

Það fer eftir orsökum ófrjóseminnar hvaða meðferð er ráðlögð en tæknifrjóvgun er ein þeirra sem koma til greina.

Nokkrar takmarkanir eru á því hvaða konur mega gangast undir tæknifrjóvgun þar sem meðal annars er tekið tillit til aldurs, heilsu og félagslegra aðstæðna. Ekki skiptir máli hver hjúskaparstaða konunnar er.

Kostnaður við tæknifrjóvgunarmeðferð er samkvæmt gjaldskrá IVF-Klíníkin Reykjavík

Ýmiss fjárstuðningur er í boði, svo sem:

  • endurgreiðslur vegna ferðakostnaðar innanlands,

  • stuðningur stéttarfélaga við sína félagsmenn.

Þeir sem gefa kynfrumur (sæði/egg) geta óskað eftir nafnleynd.

Barn sem getið er með tæknifrjóvgun getur óskað eftir upplýsingum um uppruna sinn þegar það nær 18 ára aldri, hafi gjafi ekki óskað nafnleyndar.

Vert að skoða

Lög og reglugerðir