Leikskólar
Leikskólar
“Í leikskólum skal velferð og hagur barna hafður að leiðarljósi í öllu starfi.” Úr annarri grein laga um leikskóla.
Fyrsta skólastigið
- Leikskólinn er fyrsta skólastigið og er hann ætlaður börnum undir skólaskyldualdri, það er undir sex ára aldri. Hann er ætlaður öllum börnum, óháð andlegu og líkamlegu atgervi, menningu eða trú.
- Foreldrar bera frumábyrgð á uppeldi barna sinna en leikskólauppeldið er viðbót.
Umsókn
- Foreldrar sækja um leikskóladvöl fyrir barn sitt í því sveitarfélagi þar sem barnið er skráð með lögheimili. Leikskólarnir eru ýmist reknir af sveitarfélögum, einkareknir eða einkareknir með þjónustusamning við sveitarfélagið.
- Í sumum sveitarfélögum er hægt að sækja um við fæðingu barns en hjá flestum sveitarfélögum gilda aldurstakmörk.
- Sótt er um leikskólavist á vefjum þjónustumiðstöðva, sveitarfélaga og leikskóla.
Sveitarfélög á landinu
Leikskólar á landinu
- Í flestum sveitarfélögum þurfa foreldrar að greiða ákveðið gjald fyrir leikskóladvöl barna sinna. Leikskólagjald er innheimt 11 mánuði á ári en gert er ráð fyrir að barn taki fjögurra vikna samfellt sumarleyfi. Upplýsingar um gjaldskrá leikskóla er að finna á vefjum sveitarfélaga.
- Einstæðir foreldrar og námsmenn fá ákveðinn afslátt af leikskólagjaldi. Þá er einnig veittur systkinaafsláttur. Upplýsingar um afslátt fyrir ákveðna hópa er að finna á vefjum sveitarfélaga.
- Ráðgjafar- og sálfræðiþjónusta þjónustumiðstöðva hverfa í Reykjavík sinnir sérfræðiþjónustu við leikskóla í borginni. Í öðrum sveitarfélögum er þjónustan oft hjá fræðslu- eða fjölskyldudeildum. Skólar vísa málum til þjónustunnar með samþykki foreldra og einnig geta foreldrar leitað beint eftir aðstoð.
- Leikskólinn skal leggja grunn að íslenskukunnáttu barna sem eiga annað móðurmál en íslensku og kynna þeim íslenskt samfélag.
- Biðlistar eru á mörgum leikskólum og geta því foreldrar og barn þeirra þurft að bíða eftir plássi í einhvern tíma. Oftast raðast börn á biðlista eftir aldri, þau elstu fyrst. Oft er plássum úthlutað á tímabilinu mars til maí ár hvert.
- Algengast er að börn sæki leikskóla frá 18 mánaða aldri þar til þau hefja nám í grunnskóla. Börn dvelja allt frá fjórum klukkustundum upp í níu klukkustundir, hvern virkan dag á leikskólum.
- Þegar barn byrjar í leikskóla er gerður dvalarsamningur milli skólans og foreldris og er gagnkvæmur uppsagnarfrestur einn mánuður.
- Gæsluleikvellir eru starfræktir í flestum stærri sveitarfélögum og er opnunartími misjafn eftir árstíðum. Þeir eru ætlaðir yngri börnum og er aldurtakmark misjafnt. Nánari upplýsingar finnast á vefjum sveitarfélaga.
- Sveitarfélögum er heimilt að reka saman leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla undir stjórn eins skólastjóra.
Börnin okkar, samtök foreldrafélaga leikskóla í Reykjavík
Heimili og skóli, landssamtök foreldra
Réttindi fatlaðra
- Fötluð börn eiga rétt á leikskóladvöl samkvæmt lögum. Hana á að veita á almennum leikskólum með nauðsynlegri stuðningsþjónustu eða á sérhæfðum deildum.
- Svæðisskrifstofur um málefni fatlaðra veita ráðgjöf, upplýsingar og þjónustu.
- Öryrkjar fá ákveðinn afslátt af leikskólagjaldi. Nánari upplýsingar um afslátt fyrir ákveðna hópa er að finna á vefjum sveitarfélaga.
Menntun og atvinna fatlaðra og öryrkja á island.is
Leikskólar á landinu
Vert að skoða
- Daggæsla í heimahúsum á island.is
- Fjölmenning á leikskólum
- Menntasvið og leikskólasvið Reykjavíkurborgar
- Mentor, upplýsingavefur leikskóla og grunnskóla víða um land
- Netla, vefrit um uppeldi og menntun
- Ný menntastefna, vefur mennta- og menningarmálaráðuneytis
- Svæðisskrifstofur um málefni fatlaðra

