Háskólar

Háskólar

“Hlutverk háskóla er að stuðla að sköpun og miðlun þekkingar og færni til nemenda og samfélagsins alls.” Úr annarri grein laga um háskóla.

Nám á háskólastigi

  • Íslenskir háskólar eru miðstöð þekkingar og hluti af alþjóðlegu mennta- og vísindasamfélagi.
  • Hér á landi eru starfandi sjö háskólar. Ríkisháskólar eru fjórir en sjálfseignarstofnanir þrjár.
  • Þeir sem hyggja á nám í háskóla skulu hafa lokið stúdentsprófi eða jafngildu prófi. Leyfilegt er að ákveða sérstök inntökuskilyrði í háskóla og láta nemendur gangast undir inntökupróf eða stöðupróf.
  • Heimilt er að innrita nemendur sem ekki hafa tekið stúdentspróf eða sambærilegt próf en búa að mati viðkomandi háskóla yfir jafngildum þroska og þekkingu.
  • Þá hafa háskólar, að undangengnu samþykki mennta- og menningarmálaráðuneytis, leyfi til að bjóða upp á aðfararnám fyrir þá sem ekki uppfylla inntökuskilyrði.
  • Allar nánari upplýsingar um inntökuskilyrði og inntökureglur háskóladeilda ásamt kennslu- og námskrám, umsóknareyðublöðum og upplýsingum um skráningar- og skólagjöld er að finna á vefjum háskólanna.
    Háskólar hér á landi á vef Alþjóðskrifstofu háskólastigsins
  • Boðið er upp á fjarnám í nokkrum háskólanna. Samstarf er við sveitarfélög, háskóla- og þekkingasetur og símenntunar- og fræðslumiðstöðvar víðs vegar um land. Allar nánari upplýsingar er að finna á vefjum námsdeilda sem bjóða upp á fjarnám.
  • Margir ákveða að sækja sér háskólamenntun í útlöndum. Mikilvægt er að kynna sér vel allt sem viðkemur námi og búsetu erlendis með góðum fyrirvara.
    Leit að skóla á vef Lánasjóðs íslenskra námsmanna
    Upplýsingastofa um nám erlendis á vef alþjóðaskrifstofu háskólastigsins
  • Flestir taka lán til að framfleyta sér meðan á háskólanámi stendur. Lánasjóður íslenskra námsmanna veitir lán til námsmanna. Allar nánari upplýsingar um námslán er að finna á vef LÍN.
    Lánasjóður íslenskra námsmanna
  • Háskólanemum standa til boða margs konar styrkir til náms og rannsókna, hér heima og í útlöndum. Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins.
    Handbók um styrki á vef Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein



Tungumál



Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica