Grunnskólar
"Hlutverk grunnskóla, í samvinnu við heimilin, er að stuðla að alhliða þroska allra nemenda.” Úr annarri grein laga um grunnskóla.
Yfirlit
Annað skólastigið
- Grunnskólinn er annað skólastigið. Skólaskylda er í grunnskólum sem þýðir að börn og ungmenni á aldrinum 6 – 16 ára eiga að stunda þar nám.
Grunnskólar á landinu - Foreldrum er skylt að innrita börn sín í grunnskóla og sjá til þess að þau stundi námið. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eru á vefjum flestra grunnskóla og sveitarfélaga.
Sveitarfélög á landinu - Samkvæmt grunnskólalögum eiga börn og unglingar, sem sökum félagslegra og tilfinningalegra örðugleika eiga erfitt með nám, rétt á sérstökum stuðningi í námi.
- Sveitarfélög sinna sérfræðiþjónustu við grunnskóla í formi sálfræði-, náms- og kennsluráðgjafar. Skipulag er mismunandi eftir sveitarfélögum. Skólar vísa málum til deilda með samþykki foreldra og einnig geta foreldrar leitað beint eftir aðstoð.
- Ef upp kemur ágreiningur milli forráðamanna og skóla varðandi nemanda og ekki næst samkomulag getur hvor um sig vísað málinu til skólanefndar og síðan til mennta- og menningarmálaráðuneytis.
- Grunnskólanámið skiptist í þrjú stig. Á yngsta stigi eru nemendur fyrsta til fjórða bekkjar, á miðstigi eru nemendur fimmta til sjöunda bekkjar og á efsta stigi, unglingastigi, eru nemendur áttunda til tíunda bekkjar.
- Grunnskólarnir eru einsetnir, það er kennsludagur nemenda er samfelldur með stundarhléum og matarhléi. Starfstími nemenda er að lágmarki 9 mánuðir á ári, 180 skóladagar.
- Nemendur í efstu bekkjum grunnskóla geta stundað fjarnám við framhaldskóla samhliða grunnskólanámi. Ákvörðun um námið er tekin í samráði við skólastjórnendur. Nánari upplýsingar um fjarnám er að finna á vefjum framhaldsskóla.
Framhaldsskólar á landinu - Nám barna og unglinga í grunnskólum sem reknir eru á vegum sveitarfélaga er ókeypis. Hins vegar þarf að greiða sérstakt gjald fyrir nám barna og unglinga í einkaskólum. Engir biðlistar eru í grunnskólum.
- Sveitarfélögum er heimilt að reka saman leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla undir stjórn eins skólastjóra.
Almennar leiðbeiningar vegna málsmeðferðar í ágreiningsmálum í grunnskóla
Börn á island.is
Heimili og skóli, landssamtök foreldra
Samfok, samtök foreldrafélaga og foreldraráða í grunnskólum Reykjavíkur (nýr gluggi)
Unglingar á island.is
Réttindi fatlaðra
- Fötluð börn eiga rétt á grunnskólakennslu þar sem þau eiga lögheimili. Námið skal fara fram í almennum skólum með nauðsynlegri stuðningsþjónustu eða á sérhæfðum deildum samkvæmt grunnskólalögum.
Grunnskólar á landinu
Menntun og atvinna fatlaðra og öryrkja á island.is
Menntun og fræðsla fatlaðra á menntagatt.is
Vert að skoða
- Aðalnámskrá grunnskóla á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis
- Almennt um menntamál á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis
- Félagsleg ráðgjöf á vef Reykjavíkurborgar
- Grunnskólar á landinu á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis
- Mentor, upplýsingavefur leikskóla og grunnskóla
- Námsgagnastofnun
- Námsmatsstofnun
- Netla, vefrit um uppeldi og menntun
- Ný menntastefna, vefur mennta- og menningarmálaráðuneytis
- Skólatorg, vefútgáfukerfi og þjónustuvefur fyrir grunnskóla
- Spurt og svarað um grunnskóla á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis
- Tenglasafn mennta- og menningarmálaráðuneytis um menntamál

