Framhaldsskólar

Framhaldsskólar

“Framhaldsskólar búa nemendur undir þátttöku í atvinnulífinu og frekara nám.” Úr annarri grein laga um framhaldsskóla.

Þriðja skólastigið

Almennt um framhaldsnám, menntagatt.is
Framhaldsskólar á landinu, menntagatt.is

  • Námsskipulag og nám á framhaldsskólastigi miðast við að koma til móts við ólíkar þarfir með því að bjóða upp á fjölbreyttar námsleiðir. Það skiptir miklu máli að verðandi framhaldsskólanemendur og forráðamenn þeirra kynni sér vel námsframboð skólanna. Námsráðgjafar og aðrir starfsmenn grunn- og framhaldsskóla veita einnig upplýsingar.
    Námsleiðir á menntagatt.is
    Upplýsingar um námsbrautir framhaldsskóla á menntagatt.is

"Framhaldsskóla er heimilt að gera sérstakar kröfur um undirbúning og námsárangur vegna innritunar á einstakar námsbrautir framhaldsskóla enda miði þær að því að bjóða nemendum upp á nám sem hæfir undirbúningi þeirra."
Úr 2. gr. laga um framhaldsskóla.

  • Nemendur sem eru að ljúka tíunda bekk í grunnskóla og forráðamenn þeirra fá, á vormánuðum, bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu með upplýsingum um innritun í dagskóla framhaldsskóla.
  • Aðrir umsækjendur um nám í dagskóla framhaldsskóla geta nálgast allar upplýsingar um nám og innritun á vef Menntagáttar.
  • Hægt er að fylgjast með inntökuferlinu á vef Menntagáttar. Þegar skólavist hefur verið úthlutað þarf umsækjandi að staðfesta hana með greiðslu innritunargjalds.
  • Þeim nemendum sem ekki ná tilskildum árangri í lokaprófum tíunda bekkjar á að standa til boða nám á almennri braut framhaldsskóla.
  • Skólameistara er heimilt að veita nemanda sem er orðinn 18 ára inngöngu á einstakar námsbrautir þótt hann uppfylli ekki lámarkskröfur um námsárangur við lok grunnskóla. Skólameistari ber ábyrgð á inntöku nemenda í framhaldsskóla.
  • Misjafnt er hversu langur námstími framhaldsskólanema er og fer það eftir því hvort viðkomandi er í bóknámi, starfsnámi eða iðnnámi.
  • Margir framhaldsskólar bjóða upp á nám í öldungadeildum kvöldskóla sem einkum er ætlað fullorðnum nemendum. Skólarnir auglýsa umsóknarfrest sjálfir, að hausti og eftir áramót.
  • Einnig bjóða margir framhaldsskólar upp á fjarnám. Nánari upplýsingar er að finna á vefjum framhaldsskóla sem bjóða upp á slíkt nám.
  • Framhaldsskólanemum á landsbyggðinni sem þurfa að sækja skóla út fyrir sitt sveitarfélag standa til boða styrkir, ýmist frá sveitarfélaginu eða svokallaður jöfnunarstyrkur.
    Upplýsingar um jöfnunarstyrk á vef Lánasjóðs íslenskra námsmanna
  • Nemendur á framhaldsskólastigi sem stunda löggilt iðnnám og annað samþykkt starfsnám geta sótt um námslán.
    Upplýsingar um námslán á vef Lánasjóðs íslenskra námsmanna
  • Fjölskyldur eða forráðamenn efnalítilla framhaldsskólanema geta sótt um styrk úr Framtíðarsjóði Hjálparstarfs kirkjunnar vegna útgjalda. Allar nánari upplýsingar fást hjá Hjálparstarfi kirkjunnar.
    Hjálparstarf kirkjunnar
  • Námsráðgjafar, kennarar og annað starfsfólk framhaldsskóla skal vera nemendum til ráðgjafar og leiðsagnar um náms- og starfsval og persónuleg mál sem snerta námið og skólavist.

Réttindi fatlaðra

Menntun og atvinna fatlaðra og öryrkja á island.is

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein



Tungumál



Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica