Húsnæði námsmanna

Húsnæði námsmanna

Nemum á efri skólastigum bjóðast mismunandi kostir í húsnæðismálum eftir því í hvaða sveitarfélagi þeir nema eða eiga lögheimili.

Yfirlit

Nemar og húsnæði

  • Nemendum sem stunda nám í framhaldsskólum á landsbyggðinni og stærri bæjum, fjarri heimilum sínum, stendur víða til boða að búa á heimavist eða nemendagörðum. Nánari upplýsingar um umsóknir, reglur og annað varðandi heimavistir og nemendagarða er að finna á vefjum viðkomandi framhaldsskóla.
    Framhaldsskólar á landinu á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis
  • Nokkur sveitarfélög hafa yfir að ráða námsmannaíbúðum til útleigu. Allar nánari upplýsingar fást á vefjum viðkomandi sveitarfélaga.
    Sveitarfélög á landinu
  • Byggingafélag námsmanna leigir út íbúðir til nemenda þeirra skóla sem aðild eiga að Bandalagi íslenskra námsmanna, BÍSN. Allar nánari upplýsingar um umsóknir, reglur og annað er að finna á vef Byggarfélagi námsmanna.
    Byggingarfélag námsmanna
  • Nemendur við Háskóla Íslands geta sótt um húsnæði hjá Félagsstofnun stúdenta sem rekur stúdentagarða og sér um úthlutanir á húsnæði.
    Stúdentagarðar Félagsstofnunar stúdenta
  • Nemendagarðar eru við flesta aðra háskóla landsins. Nemendum er bent á að hafa samband við sinn skóla til að leita upplýsinga þar um.
    Háskólar á landinu á vef mennta- og menningarmálaráðuneytis
  • Háskólanemum á höfuðborgarsvæðinu stendur til boða að leigja íbúðir í gömlu herstöðinni á Keflavíkurflugvelli. Námsmannaíbúðirnar eru ætlaðar einstaklingum og fjölskyldum. Nánari upplýsingar fást á vef Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs.
    Keilir.net
  • Nemar sem ekki hafa aðgang að stúdentagörðum eða námsmannaíbúðum þurfa að leita húsnæðis á almennum leigumarkaði. Þeim er bent á að kynna sér rétt sinn á vefjum viðkomandi sveitarfélaga.


Almenn leiga á island.is
Húsaleigubætur á island.is


  • Þeir námsmenn sem ætla í nám í útlöndum ættu að kynna sér vel hvernig húsnæðismál standa í viðkomandi landi. Víða eru reknir stúdentagarðar við háskóla. Þá eru og starfandi fjöldi húsnæðismiðlana.
    Upplýsingastofa um nám erlendis

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica