Leiklist
Leiklist
“Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO hefur lagt til að menning sé skilgreind sem: ”...samsafn þeirra trúarlegu, efnislegu, vitrænu og tilfinningalegu þátta sem einkenna hvert samfélag eða samfélagshóp.“
Leikhús og leiksýningar
- Atvinnuleikhús, sjálfstæð leikhús og leikhópar setja á hverju ári upp leiksýningar sem ætlaðar eru öllum aldurshópum.
- Það gera einnig mörg áhugamannaleikfélög og –leikhópar, meðal annars í menntastofnunum landsins.
- Margskonar afslættir, tilboð og árskort eru í boði hjá leikhúsum og leikhópum. Nánari upplýsingar um uppfærslur má finna á vefjum leikhúsa, leikfélaga, leikhópa og skóla.
midi.is
Vefmiðasala á leiksýningar, tónleika, kvikmyndasýningar og fleira
Kvikmyndir og ljósmyndir
- Ljósmyndarar sýna verk sín í sýningarsölum, galleríum og ljósmyndasöfnum víða um land.
- Gamlar og nýjar ljósmyndir eru sýndar allt árið í Ljósmyndasafni Reykjavíkur og Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni, sem og í mörgum byggða- og minjasöfnum á landsbyggðinni.
- Þá getur almenningur einnig skoðað verk ljósmyndara og safnkost ljósmyndasafna á vefjum þeirra.
- Kvikmyndamiðstöð Íslands veitir styrki til leikinna kvikmynda og stutt- og heimildamynda og aðstoðar framleiðendur við að kynna verkin á kvikmyndahátíðum erlendis.

