Lögbrot og refsing
Talið er réttmætt og líklegt til árangurs gegn afbrotum að refsa þeim sem brýtur lög. Samkvæmt lögum á refsiþyngdin að endurspegla alvarleika brotsins.
Brotaþoli
- Ef maður telur að brotið hafi verið gegn sér eða öðrum skal hann kæra málið til lögreglu hið fyrsta, annað hvort á næstu lögreglustöð eða með símtali.
Lögreglan - Lögreglu er skylt eftir því sem við á að leiðbeina brotaþola um réttindi hans og útskýra framhald máls. Þegar mál hefur verið kært fer af stað flókið og oft á tíðum tímafrekt ferli.
Upplýsingar fyrir þolendur afbrota, bæklingur á vef innanríkisráðuneytis (pdf, 339 kb) - Ef maður þarf aðstoð lögmanns til að gæta réttar síns er hægt að leita til Lögmannafélags Íslands.
Lögmannalisti og málaflokkar á vef Lögmannafélags Íslands - Brotaþoli getur átt rétt á bótum vegna skaða, líkamstjóns eða miska.
Lögbrot
- Dómskerfið er lögregla og ákæruvald annars vegar og dómstólar hins vegar.
Héraðsdómstólar
Hæstiréttur
Lögregla og ákæruvald á vef innanríkisráðuneytis - Ríkissaksóknari og lögreglustjórar, þar með talinn ríkislögreglustjóri, fara með ákæruvald.
Lögreglustjórar
Ríkissaksóknari
Skipan ákæruvalds á vef sýslumanna - Rannsókn opinberra mála er í höndum lögreglu. Komi í ljós við rannsókn að refsivert brot hafi verið framið er meintum brotamanni birt ákæra, telji ákærandi málið nægilegt eða líklegt til sakfellis.
Um ákæru á vef ríkissaksóknara - Sé fyrir hendi rökstuddur grunur um að maður hafi brotið gegn lögum getur lögregla krafist gæsluvarðhalds sem er tímabundin frelsissvipting. Fyrir því eru hins vegar ströng skilyrði í lögum.
Um gæsluvarðhald á vef Fangelsismálastofnunar - Ríkið sem sækjandi/ákærandi höfðar mál gegn ákærða/sakborningi. Ákærði á alltaf rétt á að taka til varna í sakamáli. Einkamál eru mál sem einstaklingar, félög eða stofnanir höfða á hendur öðrum einstaklingum eða lögpersónu.
Um ákærða á vef héraðsdómstóla
Aðgangur að dómsmálum og viðfangsefni þeirra á vef héraðsdómstóla - Ríkissaksóknari heldur sakaskrá ríkisins en í hana eru færðar tilteknar upplýsingar um lok opinberra mála/sakamála.
Maður, 18 ára eða eldri getur sótt um sakavottorð sitt skriflega hjá sýslumanninum í Kópavogi, Dalvegi 18 eða á skrifstofu lögreglustjóra í hverju umdæmi fyrir sig. Ungmenni 15 til 18 ára þurfa að fá samþykki forráðamanns til að fá sakavottorð sitt.
Upplýsingar um sakavottorð á vef ríkissaksóknara
Upplýsingar um sakavottorð á vef lögreglunnar
Hvað þýðir að vera á sakaskrá? á vef umboðsmanns barna
- Dómstig eru tvö. Hið fyrra eru héraðsdómstólar, átta talsins, en hið síðara, áfrýjunardómstig, er Hæstaréttur.
Héraðsdómstólar
Hæstiréttur - Ef vafi leikur á um sakhæfi sakbornings vegna andlegs og/eða líkamlegs sjúkleika eru sérfræðingar fengnir til að meta ástand viðkomandi.
- Börnum og ungmennum yngri en 15 ára er ekki refsað fyrir brot. Tekið er á brotinu sem barnaverndarmáli.
Um ósakhæf börn yngri en 15 ára á vef umboðsmanns barna - Á meðan á málsmeðferð stendur í héraði er hægt að skjóta úrlausn um ýmis atriði til Hæstaréttar með kæru.
Um kærur vegna opinberra mála á vef Hæstaréttar - Þegar dómur hefur fallið í héraði er hægt að áfrýja honum til Hæstaréttar til að fá dóminn endurskoðaðan.
Leiðbeiningar um áfrýjun á vef ríkissaksóknara
Grunur um fíkniefnamisferli?, upplýsingar til Lögreglu
Grunur um ólöglegan innflutning?, upplýsingar til Tollgæslunnar
Sektir, dómar og önnur úrræði
- Sáttamiðlun felur í sér að brotamaður og brotaþoli nái sáttum í kjölfar afbrots, án þess að mál fari fyrir dómstóla.
- Ef ungmenni á aldrinum 15 til 21 árs gengst við broti er skilorðsbundin frestun ákæru úrræði sem hægt er að beita.
Ákærufrestun á vef Fangelsismálastofnunar - Samkvæmt stjórnarskrá lýðveldisins getur forseti Íslands náðað menn og veitt almenna uppgjöf saka.
Náðun á vef Fangelsismálastofnunar - Þeir sem eru náðaðir, dæmdir skilorðsbundið eða ákæru frestað gegn eru undir eftirliti Fangelsismálastofnunar eða þeirra sem hún felur eftirlit í ákveðinn tíma.
Skilorðseftirlit á vef Fangelsismálastofnunar - Fangelsismálastofnun boðar dómþola til afplánunar og sér um fullnustu refsinga.
Fangelsismálastofnun ríksins
Afplánun á vef Fangelsismálastofnunar
Fullnustu dóma á vef Fangelsismálastofnunar - Nokkrum tegundum refsinga er beitt hér á landi:
- sektarrefsingu
- sakarkostnaði
- samfélagsþjónustu
- skilorðsbundinni refsivist
- óskilorðsbundinni refsivist
- Fangelsi ríkisins eru fimm.
Fangelsi ríkisins á vef Fangelsismálastofnunar - Brotamaður sem úrskurðaður er ósakhæfur vegna andlegs sjúkleika en talið er nauðsynlegt að hafa undir manna höndum dvelur á Réttargeðdeildinni að Sogni.
- Ungmenni á aldrinum 15 til 18 ára afplána dóma yfirleitt á viðeigandi meðferðarstofnun í samráði við Barnaverndarstofu.
Sakhæf börn á vef umboðsmanns barna
Barnaverndarstofa - Sá sem dæmdur er til óskilorðsbundinnar refsivistar getur sótt um reynslulausn þegar hann er búinn að sitja af sér ákveðinn hluta dóms.
Reynslulausn á vef Fangelsismálastofnunar
Vert að skoða
Brotaþoli
Lögbrot
- Almennar upplýsingar varðandi gjafsókn á vef innanríkisráðuneytis
- Grunur um fíkniefnamisferli?, upplýsingar til Lögreglu
- Grunur um ólöglegan innflutning?, upplýsingar til Tollgæslunnar
- Handtaka, fangavist og opinber mál erlendis, Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytis
- Hver er hvað í dómssalnum, á vef héraðsdómstóla
- Í dómssalnum – vitni á vef héraðsdómstóla
- Leiðbeiningar um áfrýjunarrétt ákærða, áfrýjunarfrest og áfrýjunaryfirlýsingu á vef innanríkisráðuneytis
- Meginreglur um áfrýjun og kærur til Hæstaréttar á vef Hæstaréttar
- Um ákæruvaldið á vef ríkissaksóknara
- Umferðarlagabrot á island.is
- Unglingasíða umboðsmanns barna - aðstoð í boði, afbrot
Sektir, dómar og önnur úrræði
Annað
- Almennar upplýsingar á vef ríkissaksóknara
- Átt þú foreldri í fangelsi? á vef umboðsmanns barna
- Innanríkisráðuneyti
- Lög og reglur á vef Hæstaréttar
- Refsivörslukerfið á vef Fangelsismálastofnunar ríkisins
- Sátt, félag fagfólks sem vinnur við lausn ágreiningsmála
- Stjórnskipuleg staða dómstóla og fleira á vef héraðsdómstóla
- Um bótamál á vef innanríkisráðuneytis
- Um Hæstarétt
- Ýmsar greinar á vef héraðsdómstóla

