Helstu fréttir

Hollur er heimafenginn baggi

16.9.2009

Í gegnum tíðina hafa Íslendingar gjarnan viðað að sér alls kyns nauðsynjum á haustin. Þá er aðaluppskerutíminn og tilvalið að taka slátur, tína ber, sulta, frysta og sjóða niður grænmeti og svo framvegis.

Slátur er bæði tiltölulega fljótlegt og einfalt að búa til og getur verið góð fjölskylduskemmtun. Lifur, blóð, mör, hjörtu, nýru og vambir má fá víða og hjá Leiðbeiningastöð heimilanna má sjá hvernig vinna á úr hráefninu.

Þá er ekki seinna vænna að sjóða niður ber fyrir veturinn. Hægt er að gera sultur, mauk, saft og hlaup úr margskonar berjum. Hjá Leiðbeiningastöð heimilanna er einnig að finna hagnýt ráð um geymslu og meðhöndlun grænmetis en með réttum frágangi má koma í veg fyrir að grænmetið láti á sjá og tapi næringargildi sínu.  

Ennfremur má finna fjölmörg fleiri góð hús- og sparnaðarráð á vef Leiðbeiningastöðvarinnar.







Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica