Helstu fréttir

Aðgengilegar upplýsingar vegna svínainflúensu á vef Landlæknis

25.8.2009

Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) veirunnar eða svínainflúensu skipta nú tug þúsundum víða um heim. Hennar var fyrst vart í Mexíkó, en nú hefur hún breiðst til annarra landa og heimsálfa. Einkenni svínainflúensunnar er svipuð einkennum árstíðarbundinnar inflúensu, skyndilegur hiti, særindi í hálsi, vöðvaverkir og einkenni frá öndunarfærum. Ljóst er að flensan virðist smitast greiðlega manna á milli. Þótt faraldurinn hafi hingað til verið vægur, utan Mexíkó, getur hann orðið alvarlegur  þegar frá líður. Á vef Landlæknis influensa.is er að finna yfirgripsmiklar upplýsingar fyrir almenning um svínainflúensu og nýjustu fréttir af framgangi hennar. Á vefnum eru einnig leiðbeiningar fyrir starfsfólk heilbrigðsþjónustunnar.

Svínaflensa - Inflúensa A(H1N1)v á island.is 



Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica