Helstu fréttir

Gagnagrunnur um íbúaþróun

10.3.2010

Gagnagrunnur Byggðastofnunar um íbúaþróun hefur verið uppfærður með tölum frá 1. desember 2009. Þar er hægt að skoða á myndrænan hátt íbúaþróun áranna 1997-2009 eftir kyni og aldri í skráðum sveitarfélögum 1. desember 2009, einnig er hægt að skoða ákveðin landsvæði.

Íbúum hefur undanfarin ár fækkað á landsbyggðinni og fjölgað á höfuðborgarsvæðinu, þó hefur fjölgað í einstaka þéttbýliskjörnum einkum þeim sem næst eru höfuðborgarsvæðinu. Þá hafa sveitarfélög sameinast til að valda betur verkefnum sínum og bæta þjónustu við íbúana og hefur þeim fækkað úr 229 árið 1950 í 77 sveitarfélög 1. desember 2009.

Gagnagrunnur um íbúaþróun






Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica