Helstu fréttir

Talsvert minni umferð í upphafi árs en á sama tíma í fyrra

9.3.2010

Samkvæmt mælingum á 16 stöðum á Hringvegi hefur umferð minnkað um 4,3% í janúar og febrúar 2010 samanborið við sömu mánuði í fyrra. Fara þarf aftur til ársins 2006 til að finna minni akstur í upphafi árs.

Á Suðurlandi dregst aksturinn mest saman eða um 9,0% sem er tæplega það hlutfall sem hann hafði áður aukist um á milli 2008 og 2009. Á höfuðborgarsvæðinu er einnig talsverður samdráttur en á Norður- og Austurlandi eykst akstur milli áranna 2009 og 2010 fyrstu tvo mánuði ársins.

Frétt Vegagerðarinnar




Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica