Kötturinn í sekknum hjá Landgræðslunni
Líkt og aðrar stofnanir og ráðuneyti leitar Landgræðslan allra leiða til að spara og hagræða í rekstri. Meðal 70 sparnaðarhugmynda starfsmanna laut ein að því að draga úr rýrnun á landgræðslufræi sem geymt er í sekkjum yfir vetrartímannn og reynst hefur margri músinni drjúg búbót.
Því var afráðið að fá starfskraft til að hafa hemil á nagdýrunum. Það er kötturinn Elísabet, kölluð Beta, og ættuð úr Borgarfirði. Hún sinnir störfum sínum af þvílíkri natni og ábyrgð að varla hefur lifandi mús sést í frægeymslum Landgræðslunnar frá því hún hóf störf enda vex Beta vel á þverveginn. Á heimasíðu Landgræðslunnar má sjá myndir af henni að störfum.

