Ungt fólk til athafna
Verkefnið Ungt fólk til athafna hefur fengið góðar viðtökur hjá ungmennum. Um 300-400 hafa fengið kynningu á vegum Vinnumálastofnunar og þurfa allir í kjölfarið að velja að minnsta kosti þrennt sem vekur áhuga. Þegar eru farnir af stað fimm hópar í sjálfsstyrkingarnámskeiðið Vítamín í samstarfi við Hitt húsið. Tveir hópar eru farnir af stað í Grunnmenntaskólann sem er námsleið hjá Mími símenntun og er kominn nægur fjöldi til að fara af stað með þriðja hópinn. 40 ungmenni hófu nýtt nám um miðjan mánuðinn í Fjölbraut í Breiðholti. Í því er lagt upp úr nýjum og óhefðbundnum leiðum með áherslu á list- og verkgreinar, sjálfsstyrkingu og fleira. Þar skapast ný tækifæri fyrir ungmenni sem til þessa hafa ekki fengið þörfum sínum fullnægt í framhaldsskólum. Mikill áhugi er á vinnuvélanámskeiði og eru tveir hópar farnir af stað í það. Fleiri námskeið hefjast fljótlega; meðal annars í ferðaþjónustu, hótel og barþjónanámi og fleiru. Þá hafa um 50 ungmenni lýst yfir áhuga á sjálfboðaliðastörfum hjá Rauða krossinum, ÍSÍ og Veraldarvinum.
Frétt Vinnumálastofnunar
Nánar um verkefnið

