Nýskráning ökutækja dregst mikið saman
Mun færri ökutæki hafa verið nýskráð hjá Umferðarstofu það sem af er árinu en á sama tíma í fyrra. 316 slík voru skráð frá upphafi þessa árs til 15. febrúar en á sama tíma árið 2009 voru þau 444. Þetta er rétt tæplega 29% samdráttur milli ára. Tölurnar taka til allra tegunda skráðra ökutækja.
Eigendaskiptum ökutækja hefur einnig fækkað töluvert það sem af er árs 2010 í samanburði við 2009. Á fyrstu 45 dögum ársins hafa 6.861 eigendaskipti verið gerð á ökutækjum samanborið við 9.247 eigendaskipti eftir jafn marga daga á síðasta ári. Þetta er 26% fækkun milli ára.
Fréttt Umferðarstofu

