Lesum fylgiseðla lyfja
Mikilvægi þess að notendur lyfja kynni sér vel og vandlega upplýsingar í fylgiseðlunum verður aldrei ofmetið. Ef þörf er fyrir frekari upplýsingar en þar koma fram er mikilvægt að leita til læknis eða lyfjafræðings.
Fylgiseðill lyfs er yfirleitt laust blað eða bæklingur í lyfjapakkningunni. Einnig getur fylgiseðill verið hluti af merkimiða pakkningar og er þá oft um nokkurs konar flettimiða að ræða. Oftast er fylgiseðillinn á íslensku.
Mjög mikilvægt er að notendur lyfja fylgist vel með uppfærslum á fylgiseðlum hverju sinni sem þeir fá lyf afhent. Með því að bera dagsetninguna saman við dagsetningu fylgiseðils sem maður fékk síðast kemur strax í ljós hvort um breyttan texta er að ræða.
Ábending Lyfjastofnunar

MínarSíður
