Skráning dvalarstaðar
Skráning dvalarstaðar
Allir, 18 ára og eldri, sem flytja til Íslands til að búa eða vinna lengur en þrjá mánuði, eiga að tilkynna dvalarstað sitt hérlendis innan sjö daga frá komu.
Yfirlit
Skráning dvalarstaðar
Upplýsingar um skráningu dvalarstaðar á vef Fjölmenningarseturs - Flutning til landsins á að tilkynna á skrifstofu þess sveitarfélags sem dvalið er í eða til Þjóðskrár Íslands í Reykjavík.
- Foreldrar eða forsjármenn barna yngri en 18 ára verða að tilkynna þau.
- Norrænir ríkisborgarar þurfa að tilkynna sig á skrifstofu sveitarfélags eða hjá Þjóðskrá Íslands í Reykjavík. Nauðsynlegt er að sýna skilríki við skráningu.
Þjóðskrá Íslands
Borgartúni 21
150 Reykjavík
Fax: 515-5410
skra@skra.is
- Eyðublað er á vef Þjóðskrár og hægt að fylla það út á netinu: Flutningstilkynning innanlands
- Eyðublaðið er einnig fáanlegt á ensku:
Notification of change of address in Iceland
- Tilgreina þarf á eyðublaðinu alla einstaklinga sem flytja saman og taka fram land sem flutt er frá eða til.
- Tilkynninguna þarf að prenta út og skrifa undir. Hægt er að senda tilkynninguna í pósti eða sem símbréf til Þjóðskrár Íslands.
- Dvalarstaður er ekki það sama og lögheimili.
Ef eyðublaðinu er ekki skilað rafrænt skal það undirritað og sent í pósti á Þjóðskrá Íslands.
Vert að skoða
- Sveitarfélög í landinu
- Pöntunarform upplýsingabæklings fyrir EES- og EFTA- ríkisborgara og ríkisborgara utan EES- og EFTA-ríkja

Mittsvæði
