Kennitala
Kennitala
Allir einstaklingar búsettir á Íslandi eru skráðir í Þjóðskrá Íslands og þurfa að hafa kennitölu sem er tíu stafa tala. Segja má að hún sé lykillinn að samfélaginu.
Yfirlit
Kennitala
Upplýsingar um umsókn kennitölu á vef Fjölmenningarseturs- Fyrstu sex tölur kennitölu taka mið af afmælisdegi, mánuði eða fæðingarári viðkomandi.
- Í Þjóðskrá Íslands eru skráðar upplýsingar um lögheimili, nafn, fæðingar, nafngjafir, flutninga, giftingar, sambúð, skilnað, andlát og fleira.
- Nauðsynlegt er fyrir erlenda ríkisborgara að fá kennitölu hjá Þjóðskrá. Ekki er hægt að opna bankareikning, skrá lögheimili eða fá sér heimilissíma án þess að vera með kennitölu.
- Hægt er að sækja um kennitölu á netinu en umsóknina þarf að prenta út, skrifa undir og senda í pósti eða símbréfi til Þjóðskrár.
Eyðublöð og upplýsingar um skráningu kennitölu fyrir útlendinga á vef Þjóðskrár Íslands
Þjóðskrá Íslands
Borgartúni 21
150 Reykjavík
Fax: (+354) 515-5410
skra@skra.is
Vert að skoða
Lög og reglugerðir

