Hjálp
Hjálp
Heildstæðar upplýsingar um þjónustu ríkis og sveitarfélaga er að finna á island.is.
Leitað að upplýsingum
Efni á island.is er skipt upp eftir efnisflokkum. Þessa efnisflokka er að sjá á forsíðu vefsins.
Hægt er að nálgast efnið með eftirfarandi leiðum:
- Velja efnisflokk á forsíðu og leita þar að undirkafla um viðkomandi efni.
- Leita með Emblunni með því að skrifa leitarorð í leitarreit. Emblan er leitarvél sem skilur íslensku sem þýðir að hún tekur tillit til mismunandi orðmynda íslenskra orða; fallbeyginga, tölu og greinis.
- Velja A-Ö og leita eftir upphafsstaf. Sem dæmi má nefna að ef leitað er að vegabréfi þá er smellt á V.
Á island.is eru nær öll eyðublöð ríkisins. Einnig er vísað á mörg eyðublöð á vegum sveitarfélaga en annars er bent á vef viðkomandi sveitarfélags. Þrjár leiðir eru til að finna viðkomandi eyðublað eða umsókn:
- Með leitarorði.
- Eftir upphafsstaf.
- Eftir efnisflokk.

