Sjúkra- og slysatryggingar

Sjúkra- og slysatryggingar

Þeir sem eru búsettir hér eru tryggðir að uppfylltum vissum skilyrðum og samkvæmt ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins (TR) og Sjúkratrygginga Íslands. Tryggingavernd fellur niður þegar flutt er úr landi.

Sjúkratryggingar

  • Þeir sem búsettir eru hér á landi og hafa átt lögheimili hér síðastliðna sex mánuði eru sjúkratryggðir.
  • Þeir sem eru ótryggðir og búsettir hér á landi geta fengið undanþágu frá skilyrði í nokkrum tilvikum.
  • Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa hjá lækni og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum sem hafa samning við stofnunina.
  • Sjúkratryggingar greiða hluta kostnaðar vegna almennra tannlækninga fyrir börn og unglinga 17 ára og yngri, elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega, börn með umönnunargreiðslur og andlega þroskahamlaða einstaklinga.

Endurgreiðslur á umtalsverðum læknis-, lyfja-, og þjálfunarskostnaði á vef Sjúkratrygginga
Gjaldskrár fyrir heilbrigðisþjónustu á vef Sjúkratrygginga (pdf)
Spurt og svarað um tannlækningar á vef sjúkratrygginga
Tannlækningar á vef Sjúkratrygginga
Um afsláttarkort á vef Sjúkratrygginga




Slysatryggingar

  • Allir launþegar, án tillits til aldurs, sem starfa hér á landi eru slysatryggðir við vinnu sína. Sama gildir um þá sem stunda iðnnám og verklegt nám, taka þátt í íþróttum á vegum viðurkennds íþróttafélags eða eru við björgunarstörf.
  • Bætur slysatrygginga eru sjúkrahjálp, slysadagpeningar, örorkubætur og dánarbætur. Greiðsluþátttaka TR vegna sjúkrahjálpar nær meðal annars til læknishjálpar, lyfja og umbúða, dvalar á sjúkrastofnun, sjúkraþjálfunar og sjúkraflutnings.

Slysabætur á vef Sjúkratrygginga
Slysatryggingar á vef Sjúkratrygginga
Spurt og svarað um slysamál á vef Sjúkratrygginga

Sjúklingatryggingar

  • Verði sjúklingur fyrir líkamlegu eða geðrænu heilsutjóni vegna sjúkdómsmeðferðar eða rannsóknar veitir sjúklingatrygging rétt til bóta í ákveðnum tilvikum.

Sjúklingatrygging á vef Sjúkratrygginga

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Hafirðu skoðun eða ábendingu um efni sem þér finnst vanta á vefinn, sendu hana þá á tölvupóstfangið: island@island.is



Senda grein



Tungumál



Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica