Réttur sjúklinga
Sjúklingur á rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem unnt er að veita og skal taka mið af ástandi hans, horfum og bestu þekkingu. Óheimilt er að mismuna sjúklingi á grundvelli kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu.
Réttindi sjúklinga
- Sjúklingur á rétt á upplýsingum um eigið heilsufar, batahorfur, fyrirhugaða meðferð og önnur úrræði. Sjúklingur á rétt á að ákveða hvort hann þiggur meðferð.
- Sjúkraskrá hvers og eins er ýmist varðveitt á heilbrigðisstofnun eða hjá lækni viðkomandi. Ef sjúklingur eða umboðsmaður hans vilja sjá sjúkraskrá eða hluta hennar er heilbrigðisstarfsmanni skylt að sýna hana.
Réttindi sjúklinga á vef Landlæknisembættis
Um sjúkraská á vef Landlæknisembættis
Upplýst samþykki og úrsagnir
- Nauðsynlegt er samkvæmt lögum að leita eftir upplýstu samþykki sjúklings, annars vegar fyrir meðferð og hins vegar fyrir beinni þátttöku í vísindarannsóknum.
- Sjúklingur getur hvenær sem er afturkallað samþykki sitt fyrir því að lífssýni hans séu geymd og einnig að upplýsingar um hann séu fluttar í gagnagrunn á heilbrigðissviði.
Samþykki sjúklinga á vef Landlæknisembættis
Úrsagnir úr lífssýnasafni og miðlægum gagnagrunni á heilbrigðissviði á vef Landlæknisembættis
Trúnaðar- og þagnarskylda
- Allir starfsmenn heilbrigðisþjónustunnar eru bundir þagnarskyldu gagnvart sjúklingi. Undantekningu má gera ef ljóst þykir að þagnarskylda valdi meiri skaða en að rjúfa hana.
Um þagnarskyldu á vef Landlæknisembættis

