Lifandi líffæragjafar
Lifandi líffæragjafar
Hægt er að sækja um tímabundna fjárhagsaðstoð hjá Sjúkratryggingum Íslands vegna fjarveru frá vinnu eða námi vegna líffæragjafar.
Yfirlit
Lifandi líffæragjafar
- Líffæragjafar á vinnumarkaði og líffæragjafar í námi geta sótt um greiðslur.
- Tekjutengdar greiðslur til líffæragjafa sem er launamaður eða sjálfstætt starfandi skulu nema 80% af meðaltali heildarlauna tekjuárið á undan því ári sem viðkomandi leggur niður störf vegna líffæragjafar.
- Hámarksfjárhæð á mánuði verður þó ekki meiri en 535.700 krónur og lágmarksgreiðsla 134.300 krónur.
- Námsmenn fá greiddar 134.300 krónur á mánuði.
Líffæragjafi á vinnumarkaði
- Skilyrði greiðslna til líffæragjafa á vinnumarkaði er að viðkomandi hafi verið á vinnumarkaði í a.m.k. 6 mánuði samfellt áður en hann verður óvinnufær vegna líffæragjafar.
- Þá er skilyrði að líffæragjafinn eigi lögheimili hér á landi þegar hann verður óvinnufær vegna líffæragjafar sem og þann tíma sem greiðslur eru inntar af hendi.
Með umsókn þarf að fylgja
- Vottorð sérfræðings sem annast líffæragjöfina þar sem fram kemur hve lengi og hvenær líffæragjafi verður frá vinnu
- Staðfesting vinnuveitanda á að störf hafi verið lögð niður
- Staðfesting vinnuveitanda á að launagreiðslur hafi fallið niður
- Staðfesting vinnuveitanda á starfstímabili og starfshlutfalli
- Tekjuáætlun
Líffæragjafi í námi
- Skilyrði greiðslna til líffæragjafa í námi er að viðkomandi hafi verið í 75-100% námi í a.m.k. 6 mánuði á síðustu 12 mánuðum áður en hann gerði hlé á námi vegna líffæragjafar.
- Þá er skilyrði að líffæragjafinn eigi lögheimili hér á landi þegar hann gerir hlé á námi sínu vegna líffæragjafar og það tímabil sem greitt er fyrir.
- Heimilt er að veita undanþágu frá skilyrði um lögheimili hafi líffæragjafi flutt lögheimili sitt tímabundið vegna náms erlendis eftir að hafa átt lögheimili á Íslandi samfellt í að minnsta kosti fimm ár áður.
Með umsókn þarf að fylgja
- Vottorð sérfræðings sem annast líffæragjöfina þar sem fram kemur tímabil sem líffæragjafi þarf að gera hlé á námi
- Staðfesting frá skóla á að líffæragjafi hafi gert hlé á námi
- Staðfesting frá skóla á fyrri skólavist líffæragjafa
- Tekjuáætlun
Umsókn um fjárhagsaðstoð til líffæragjafa
Greiðslur sem ekki fara saman með greiðslum vegna líffæragjafa
- Atvinnuleysisbætur fyrir sama tímabil.
- Greiðslur í fæðingarorlofi eða vegna fæðingarstyrks.
- Lífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar.
- Foreldragreiðslur samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
Kæruheimild
- Heimilt er að kæra ákvarðanir um réttindi líffæragjafa til úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála.
- Kæra skal berast nefndinni skriflega innan þriggja mánaða frá því niðurstaða var kynnt.
- Úrskurðarnefndin skal leitast við að kveða upp úrskurð innan tveggja mánaða frá því kæra berst.
Vert að skoða
- Kæra til Úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála
- Sjúkratryggingar Íslands
- Tryggingastofnun ríkisins
Lög og reglugerðir
- Lög um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar
- Reglugerð um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar

Mittsvæði
