Kvartanir og kærur

Kvartanir og kærur

Kvartanir og kærur almennings vegna heilbrigðisþjónustu eru misjafnlega umfangsmiklar og alvarlegar, allt frá kvörtunum yfir vandræðum í samskiptum við heilbrigðisstarfsfólk og yfir í alvarleg mál vegna mistaka.

Kvartanir og kærur

  • Landlæknisembættið og nefnd um ágreiningsmál taka við kvörtunum og kærum vegna meðferðar á heilbrigðisstofnunum. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar fást á vef Landlæknisembættis.
  • Ef kvarta á yfir þjónustu á heilbrigðisstofnun skal hafa samband við yfirstjórn viðkomandi stofnunar. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar fást á vef Landlæknisembættis.
  • Ef mistök eða óhapp verður við meðferð eða aðgerð innan opinberrar heilbrigðisþjónustu getur sjúklingur leitað til Sjúkratrygginga Íslands eftir sjúklingatryggingabótum.
  • Ef mistök eða óhapp verður á einkastofu læknis, tannlæknis eða annarra heilbrigðisstarfsmanna getur sjúklingur leitað bóta hjá tryggingafélagi heilbrigðistarfsmannsins.

Erindi til Landlæknisembættisins
Sjúklingatrygging á vef Sjúkratrygginga

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica