Sjúkrahótel og íbúðir
Sjúkrahótel og íbúðir
Sjúkrahótel er millistig milli sjúkrahúss og hótels. Þar dveljast sjúklingar í endurhæfingu og þeir sem þurfa heilsu sinnar eða aðstandenda vegna að sækja þjónustu utan heimabyggðar.
Sjúkrahótel og íbúðir ætlaðar aðstandendum
- Sjúkrahótel Landspítala, Ármúla 9, er ætlað þeim sem heilsu sinnar vegna eða aðstandenda verða að dvelja fjarri heimili vegna meðferðar og rannsókna.
- Hótelið nýtist líka þeim sem verið hafa á sjúkrahúsi sem liður í frekari endurhæfingu og bata. Dvöl er háð tilvísun lækna og hjúkrunarfræðinga.
- Landspítali hefur yfir að ráða nokkrum íbúðum sem sjúklingum utan af landi og aðstandendum þeirra standa til boða á höfuðborgarsvæðinu.
- Barnaspítali Hringsins hefur umsjón með nokkrum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu sem leigðar eru til foreldra sjúkra barna utan af landi.
- Upplýsingar um greiðslu fyrir afnot af íbúð fást hjá tengiliðum.
Íbúðir ætlaðar sjúklingum og aðstandendum
Upplýsingar um sjúkrahótel

