Heilsugæsla
Yfirlit
Heilsugæsla er yfirleitt fyrsti viðkomustaður fólks í heilbrigðisþjónustunni.
Skráning á heilsugæslustöð á höfuðborgarsvæðinu
Heilsugæslustöðvar
- Heilsugæslustöðvar þjóna fyrst og fremt íbúum viðkomandi sveitarfélags eða hverfis.
- Æskilegt er því að að skrá sig og sína á næstu heilsugæslustöð eða heilbrigðisstofnun og sækja um heimilislækni.
- Þegar skráning hefur verið staðfest, þarf viðkomandi að gefa heilsugæslustöð leyfi til að kalla eftir sjúkraskrárgögnum.
Heilbrigðisstofnanir á landinu á vef Landlæknisembættis
Heilsugæslustöðvar á landinu á vef Landlæknisembættis
Sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir
- Heilbrigðisstarfsmenn hafa einir rétt til þess að senda fólk á sjúkrahús til meðferðar og lækninga.
- Víða hafa sjúkrahús og heilsugæslustöðvar verið sameinaðar undir heitinu heilbrigðisstofnanir.
- Aðrar heilbrigðisstofnanir eru meðal annars endurhæfingarstofnanir, meðferðarheimili, sjúkrasambýli og vinnu- og dvalarheimili.
- Öldrunarstofnanir eru samheiti yfir dagvist, stoðbýli, sambýli aldraðra, þjónustuíbúðir aldraðra, hjúkrunar- og dvalarheimili, dvalarrými og hjúkrunardeildir á sjúkrastofnunum.
Aðrar stofnanir á sviði heilbrigðisþjónustu á vef Landlæknisembættis
Heilbrigðisstofnanir á landinu á vef Landlæknisembættis
Sjúkrahús á landinu á vef Landlæknisembættis
Stofnanir og nefndir tengdar heilbrigðisþjónustu
Öldrunarstofnanir á vef Landlæknisembættis
Starfsfólk í heilbrigðisþjónustu
- Heilbrigðisþjónustan samanstendur af fjölmörgum heilbrigðisstéttum með lögverndað starfsheiti og sumar hverjar lögverndað starfssvið, einnig fólki með sérþekkingu á öðrum sviðum og fólki sem sinnir almennum störfum.
Starfsfólk í heilbrigðisþjónustu á vef Landlæknisembættis
Starfsréttindi heilbrigðisstétta á vef Landlæknisembættis - Margir sérgreinalæknar og sérfræðingar starfa bæði á heilbrigðisstofnunum og eigin stofum. Flestir hafa gert samning við Tryggingastofnun.
Óhefðbundin meðferð
- Græðarar leggja stund á heilsutengda þjónustu utan almenna heilbrigðiskerfins, svokallaða óhefðbundna meðferð.
- Óhefðbundin meðferð byggir fremur á hefð og reynslu en gagnreyndum vísindalegum niðurstöðum og er markmiðið að efla heilsu fólks, lina þjáningar, draga úr óþægindum og stuðla að heilun.
Bandalag íslenskra græðara
Um óhefðbundna meðferð á vef Landlæknisembættis
Vert að skoða
- Gjaldskrár á vef Landspítala
- Gjaldskrá læknis- og heilsugæsluþjónustu á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
- Láttu í þér heyra á vef Landlæknisembættis
- Um heilsugæslu, heilsuvernd og forvarnir á vef Landlæknisembættis
- Upplýsingar fyrir almenning um sjúkdóma og heilsuvandamál á vef Landlæknisembættis

