Veikindi - leitað til læknis

Veikindi - leitað til læknis

Heilsugæslan veitir öllum heilbrigðisþjónustu. Þar getur almenningur gengið að vísri þjónustu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar og heilsuverndar og fengið ráðgjöf og leiðbeiningar.

Leitað til læknis

  • Neyðarnúmerið 112 (einn, einn, tveir) svarar öllum símtölum vegna neyðartilvika og aðstoðarbeiðna og sinnir allri neyðarþjónustu, allan sólarhringinn, allt árið um kring.
  • Á höfuðborgarsvæðinu er mótttaka hjá Læknavaktinni utan dagtíma virka daga frá kl. 17 - 23.30 og frá kl. 9 - 23.30 um helgar og helgidaga.
  • Vitjanaþjónusta Læknavaktarinnar er starfrækt frá kl. 17 til miðnættis virka daga og frá kl. 8 til miðnættis um helgar og helgidaga.
  • Símaráðgjöf Læknavaktar er virka daga frá kl. 17 - 8 og allan sólarhringinn um helgar og helgidaga. Sími: 1770
    Læknavaktin

Heilsugæsla og vaktþjónusta

Þegar leita skal til læknis eða fá upplýsingar vegna bráðra eða langvinnra veikinda og minni háttar slysa eru nokkrar leiðir færar.

Vert að skoða

Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica