Slys og bráðatilvik
Slys og bráðatilvik
Bráða- og slysamóttökur eða slysadeildir eru á flestum heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum. Þjónustan er veitt allt árið. Neyðarnúmerið 112 (einn, einn, tveir) sinnir allri neyðarþjónustu og svarar öllum símtölum vegna neyðartilvika og aðstoðarbeiðna.
Slysa og bráðamóttaka
- Bráðaþjónustur og/eða slysamóttökur eru starfandi við deildir og svið sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana.
- Slysa- og bráðamóttaka er á Landspítala í Fossvogi, sími 543 2000.
Bráðamóttaka Landspítala í Fossvogi
Bráðasvið Landspítala í Fossvogi
Bráðadeild á G2 Landspítala í Fossvogi
Bráða- og göngudeild G3 Landspítala í Fossvogi
- Bráðaþjónusta við hjartasjúklinga er á Hjartagátt, Landspítala við Hringbraut, nema um helgar. Þá er tekið á móti hjartasjúklingum á slysa- og bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi.
Um Hjartagátt Landspítala við Hringbraut
Skyndihjálp á vef Rauða krossins
Börn og unglingar
- Bráðamóttaka Barnaspítala Hringsins er tilvísunarþjónusta og tekur við veikum börnum og unglingum að 18 ára aldri. Bráðamóttakan er opin allan sólarhringinn og sinnir bráðveikum börn. Símanúmer bráðamóttöku er 543 3700.
Bráðamóttaka Barnaspítala Hringsins - Barnalæknar eru með kvöld- og helgarþjónustu í Læknahúsinu, Domus Medica, við Egilsgötu, sími 563 1010.
Barnalæknavaktin - Bráðaþjónusta fyrir börn með geðsjúkdóma eða geðraskanir er virka daga á dagtíma hjá BUGL, Landspítala við Dalbraut 12, sími 543 4300/543 1000, en á öðrum tímum er hún sameiginleg með bráðamóttöku geðsviðs á Landspítalanum við Hringbraut, sími 543 4050/543 1000 og bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins. Þá er einnig bráðamóttaka við geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri, sími 463 0100.
Barna- og unglingageðdeild Landspítala
Bráðamóttaka og göngudeild geðdeildar við Hringbraut
Bráðamóttökudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri
Geð
- Bráðamóttaka geðsviðs Landspítala er í geðdeildarbyggingu sjúkrahússins við Hringbraut, sími 543 4050/543 1000. Utan opnunartíma er hægt að leita á almenna bráðamóttöku. Bráðamóttaka er við geðdeild Sjúkrahússins á Akureyri, sími 463 0100.
Bráðamóttaka og göngudeild geðdeildar Landspítala við Hringbraut
Bráðamóttökudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri
Meðganga
- Ef alvarleg vandkvæði eins og blæðingar eða verkir á fyrstu þremur mánuðum meðgöngu hrjá konur geta þær leitað til móttökudeildar kvennasviðs Landspítala við Hringbraut, sími 543 3266/543 3265/543 1000. Þá geta konur einnig leitað til kvennadeildar Sjúkrahússins á Akureyri, sími 463 0129/463 0134.
Móttökudeild kvennasviðs Landspítala við Hringbraut
Kvennadeild Sjúkrahússins á Akureyri
Áfengi og vímuefni
-
Móttaka fyrir þá sem eiga við áfengis- og vímuefnavanda að stríða er í geðdeildarbyggingu Landspítala við Hringbraut, sími 543 4050/543 1000.
Bráðamóttaka og göngudeild geðdeildar við Hringbraut
Fíknigeðdeild Landspítala
Nauðgun
- Bráðamóttaka vegna kynferðislegs ofbeldis er á öllum bráðamóttökum og slysadeildum. Sérstök neyðarmóttaka er á slysa- og bráðasviði Landspítala í Fossvogi, sími 543 2094/543 2000 og slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri, sími 463 0800.
Neyðarmóttaka fyrir þolendur kynferðisofbeldis Landspítala í Fossvogi
Hvernig er haft samband við neyðarmóttöku þolenda kynferðisofbeldis
Neyðarmóttaka fyrir þolendur kynferðisofbeldis á slysadeild Sjúkrahússins á Akureyri
Eitrun
-
Komist einstaklingur í tæri við hættuleg efni, eitraðar plöntur eða lyf skal hafa samband við Eitrunarmiðstöð Landspítala, sími 543 2222. Hægt er að hringja allan sólarhringinn og fá upplýsingar og leiðbeiningar. Einnig er hægt að nálgast fræðsluefni um hvernig bregðast á við ef eitrun verður.
Eitrunarmiðstöð LS
Áfallahjálp
- Þeir sem orðið hafa fyrir áfalli geta leitað aðstoðar á miðstöð áfallahjálpar á Landspítala, sími 543 2085, slysadeildum og bráðamóttökum og einnig hringt í hjálparsíma Rauða krossins.
Áfallahjálp og almannavarnir
1717 - Hjálparsími Rauða krossins
Tannlæknar
-
Á höfuðborgarsvæðinu starfar neyðarvakt tannlækna. Athugið að gjaldskrá starfandi tannlækna er frjáls og er allt frá 34% til 130% yfir gjaldskrá sem heilbrigðisráðherra gefur út fyrir tannlækna. Spyrjið um verð áður en þjónusta er þegin.
Gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands fyrir tannlækningar (pdf)
Neyðarvakt tannlækna
Vert að skoða
- Athvörf fyrir fólk með geðraskanir á vef Rauða krossins
- Áfallahjálp og almannavarnir
- Getur þú hjálpað... þegar á reynir? Skyndihjálp á vef Rauða krossins
- Gjaldskrár á vef Landspítala
- Heilbrigðisstofnanir á landinu á vef embættis landlæknis
- Neyðarnúmerið 112
- SÁÁ
- Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
- Stuðningur við þá sem eru í sjálfsvígshugleiðingum
- Um kynferðisafbrot á vef Lögreglunnar (pdf, 248 kb)
- Veikindi - leitað til læknis á island.is

MínarSíður
