Svínaflensa - Inflúensa A(H1N1)v

Svínaflensa - Inflúensa A(H1N1)v

A(H1N1) inflúensufaraldursins varð fyrst vart í Mexíkó og Bandaríkjunum í mars og apríl 2009. Veiran er með erfðaefni frá svína-, fugla- og mannainflúensu og hefur samsetningin aldrei sést áður. Á síðustu öld urðu fjórir alheimsfaraldrar, árin 1918, 1957, 1968 og 1977.


Almenn bólusetning gegn inflúensu A(H1N1)v
Heimsfaraldur inflúensu - landsáætlun – Viðbragðsáætlun Almannavarna (pdf)
Mikilvægt er að almenningur fylgist vel með fréttum af inflúensunni
og fari eftir opinberum ráðleggingum um smitvarnir og meðferð sjúkra.
Upplýsingar um bólusetningu gegn inflúensu A(H1N1)v á Íslandi


Smitleiðir, einkenni sýkingar og meðgöngutími  

  • Veiran berst á milli manna með hósta og hnerra, sem dropa- og loftborið smit og einnig með höndum sem snertismit eins og árleg inflúensa.
  • Einkenni flensunnar eru enn sem komið er oftast svipuð einkennum árstíðabundinnar inflúensu, hiti, hósti, hálssærindi, þreyta og slappleiki. Einnig hefur borið á uppköstum og niðurgangi sem fylgja yfirleitt ekki árstíðabundinni inflúensu.
  • Svo virðist sem hætta á alvarlegum sýkingum af völdum inflúensu a(h1N1)v veiru sé dálítið meiri hjá barnshafandi konum og fólki með langvinna undirliggjandi sjúkdóma, til dæmis lungnasjúkdóma, offituvandamál, taugasjúkdóma eða efnaskiptasjúkdóma. Sú hætta er hins vegar ekki það mikil að ástæða sé til sérstakra varúðarráðstafana til að forða þeim frá sýkingu.
  • Tími frá smiti til fyrstu einkenna er í flestum tilfellum 2 til 3 dagar en getur verið allt að 7 dagar.
  • Þeir sem fá einkenni inflúensu eiga að forðast að smita aðra og fara heim ef þeir eru að heiman. Ef þörf er á læknisskoðun eða upplýsingum frá heilbrigðisþjónustunni skal hafa samband við heilsugæsluna í sínu hverfi og utan dagvinnutíma, Læknavaktina.
    Inflúensa, vefur landlæknis
    Inflúensa A(H1N1)v, á vef landlæknis
    Ráðleggingar til einstaklinga með inflúensulík einkenni (pdf)
    Inflúensa – Upplýsingar um einkenni, smitleiðir og meðferð (pdf)

Umönnun sjúkra heima og sýkingavarnir

  • Nauðsynlegt er að sjúklingur hvíli sig og drekki mikinn vökva. Æskilegt er að taka hitastillandi lyf við háum hita og verkjum, svo sem parasetamol. Ekki er mælt með asperíni hjá börnum undir 16 ára aldri.
  • Heilbrigðisyfirvöld mæla með einangrun sjúkra á heimilum þar til að minnsta kosti 7 dagar eru liðnir frá upphafi veikinda.
  • Æskilegt er að aðeins einn heimilismaður sinni sjúklingi. Hafi einhver heimilismaður veikst af inflúensu áður og náð sér er best að hann annist sjúklinginn.   
  • Aðrir heimilismenn skulu hafa eins lítið samneyti við sjúkling og mögulegt er. Halda sig í að minnsta kosti 1 metra fjarlægð frá honum og vera ekki í sama herbergi.
  • Mikilvægt er að gæta almenns hreinlætis, þvo sér um hendur oft og nota handspritt.
  • Æskilegt er að lofta vel um og þrífa þau herbergi sem sjúklingur notar með heimilisfólki. svo sem eldhús og baðherbergi.
    Inflúensa – Leiðbeiningar fyrir heimilisfólk (pdf)

Viðbragðsáætlanir og nánari upplýsingar

  • Að ráði Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar WHO og Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins ECDC hafa flestar þjóðir virkjað viðbragðsáætlanir sínar vegna heimsfaraldursins.
  • Landsmenn eru hvattir til að kynna sér viðbragðsáætlun almannavarna Heimsfaraldur inflúensu - landsáætlun (pdf). Þar er að finna ítarlegar upplýsingar, meðal annars um háskastig almannavarna og Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, sóttvarnaráðstafanir, verkefni og hlutverk þeirra sem eru í viðbragðsstöðu, boð- og samskiptaleiðir.
  • Skólastarf hefst með eðlilegum hætti á haustönn 2009 en verið er að leggja lokahönd á viðbragðsáætlanir fyrir skóla landsins.
  • Hjá sveitarfélögum er unnið að áætlunum um hvernig tryggja á órofna lykilþjónustu á meðan faraldurinn gengur yfir.  

Vert að skoða

Senda grein



Tungumál



Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica