Heilsa og líðan
Andleg líðan
Þegar fólk verður fyrir áföllum þarf það að muna að nauðsynlegt er að ræða málin við sína nánustu og fá hjá þeim þann stuðning sem hægt er. Fyrir þá sem af einhverjum ástæðum geta ekki rætt við sína nánustu eru önnur úrræði í boði.
Almennar upplýsingar
- Heilsugæslan; heimilislæknar og hjúkrunarfræðingar
- 1717 hjálparsími Rauða krossins
- Umboðsmaður skuldara
- Geðdeildir Landspítala háskólasjúkrahúss og Sjúkrahússins á Akureyri
- Göngudeildin Von við SÁÁ
- Félagsþjónusta sveitarfélaga
- Fjölskyldumiðstöð við Háleitisbraut
- Fjölskylduþjónusta kirkjunnar
- Þjónusta heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu
- Sérfræðistofur geðlækna, geðhjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og félagsráðgjafa.
Sálfræðiráðgjöf Rauðakrosshússins
- Rauðakrosshúsin eru ætluð bæði einstaklingum og fjölskyldum sem telja sig þurfa á sálrænum stuðningi að halda.
- Þar eru til staðar sjálfboðaliðar og áfallahjálparteymi Rauða krossins sem samanstendur af sálfræðingum, félagsráðgjöfum, prestum og kennurum.
Þjónusta kirkjunnar
- Almenningur getur nýtt sér margskonar þjónustu þjóðkirkjunnar á erfiðum tímum. Þjóðkirkjan
- Í kirkjum landsins er messað flesta sunnudaga. Í mörgum kirkjum eru auk þess reglulegar kyrrðar- og bænastundir.
Kyrrð í kirkjum á höfuðborgarsvæðinu á vef kirkjunnar
- Allir prestar þjóðkirkjunnar eru til viðtals fyrir almenning opg umir hafa fasta viðtalstíma í kirkjunum. Sóknir þjóðkirkjunnar
- Fjölskylduþjónusta kirkjunnar veitir viðtalsþjónustu við fjölskyldur í erfiðleikum.
- Innanlandsaðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar veitir félagslega og fjárhagslega aðstoð, meðal annars með matarúthlutun.
Heilsugæslustöðvar á landinu
- Heilsugæslustöðvar eru starfræktar um allt land, bæði sem sjálfstæðar stofnanir og sem hluti af Heilbrigðisstofnun viðkomandi héraðs.
Ráðgjöf Rauða krossins
- Hjálparsími Rauða krossins 1717 er gjaldfrjáls sími sem er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa á aðstoð að halda vegna kvíða, þunglyndis, depurðar, efnahagsáhyggna eða jafnvel sjálfsvígshugsana.
- Hjálparsíminn veitir ráðgjöf til fólks á öllum aldri sem óskar eftir stuðningi.
Vert að skoða
- Auður býr í barni hverju, bæklingur um áhrif fátæktar á börn og leiðir til að bæta aðstæður (pdf)
- Bráðaþjónusta og heilsugæsla á island.is
- Fjölskyldan á Island.is
- Geðhjálp
- Hugarafl
- Landlæknisembættið
- Landspítali
- Rauði kross Íslands
- Stuðningur við þá sem eru í sjálfsvígshugleiðingum
- Umboðsmaður skuldara
- Velferðarvaktin
- Þjóðkirkjan

Mittsvæði
